Menning

Sýnir íslenskar klisjur í London

Hallgerður var valin til að sýna á Freshfaced + Wildeyed en verk hennar má sjá á Hallgerður.com.
Hallgerður var valin til að sýna á Freshfaced + Wildeyed en verk hennar má sjá á Hallgerður.com.
"Þetta er eitt af flottustu ljósmyndagalleríum í heimi," segir Hallgerður Hallgrímsdóttir, listrænn ljósmyndari og blaðamaður hjá Húsum og híbýlum.

Hún var valin í hóp tuttugu og tveggja útskriftarnema í Bretlandi til að sýna á árlegu sýningunni Freshfaced + Wildeyed í The Photographer's Gallery 14. september í London. "Ég útskrifaðist úr listrænni ljósmyndun frá Glasgow School of Art í fyrra. Sýningin er fyrir útskriftarnema það árið bæði úr BA og MA-námi," segir hún um sýninguna sem er haldin í fimmta sinn.

Hallgerður á ekki langt að sækja hæfileikana en hún er dóttir myndlistarmannsins og rithöfundarins Hallgríms Helgasonar.

Karen McQuaid, sýningarstjóri sýningarinnar, sagði í viðtali við vefsíðu tímaritsins Dazed and Confused að hundruð hefðu sótt um. Vefsíðan tók einnig viðtal við Hallgerði sem var fyrsti viðmælandi þeirra úr hinum valda hópi.

Hún segir hópinn nálgast ljósmyndun á ólíkan máta. Auk þess er aldursbilið breitt - frá tuttugu og tveggja til 48 ára. "Það er líka skemmtilegt að dómnefndin fékk ekki að vita hvort umsækjendur væru frá virtum skóla eða öðrum sem þykja ekki jafn fínir."

Hallgerður sýnir útskriftarverkefni sitt í smækkaðri mynd í galleríinu. "Þetta er innsetning með misstórum ljósmyndum eftir mig og af veraldarvefnum sem ég blanda við textaverk. Verkið fjallar um Ísland og ég fór í gegnum allar klisjurnar. Ísbirnina, veðrið og snjóflóðin og allt sem er týpískt íslenskt," segir hún og bætir við að daginn eftir sýni hún í Portúgal og Tyrklandi verk sem er útkoma evrópsks samvinnuverkefnis.

- hþt






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.