Menning

Barnabókaverðlaunin til Grænlands

Ólína Þorvarðardóttir veitir Lars-Pele Berthelsen verðlaunin. Með þeim á myndinni er Josep Motzfeldt, formaður vestnorræna ráðsins.
Ólína Þorvarðardóttir veitir Lars-Pele Berthelsen verðlaunin. Með þeim á myndinni er Josep Motzfeldt, formaður vestnorræna ráðsins. mynd/magnús helgason
Grænlenski rithöfundurinn Lars-Pele Berthelsen hlaut barnabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins 2010, sem veitt voru í Norræna húsinu á föstudag við setningu hátíðarinnar Nýja slóðir. Verðlaunin hlaut Berthelsen fyrir bókina Kaassalimik oqaluttuaq, ljósa barnið. Þetta er í fyrsta sinn sem Grænlendingur vinnur til barnabókaverðlauna Vestnorræna ráðsins en þau hafa verið veitt annað hvert ár síðan 2002.

Tvær unglingabækur voru tilnefndar í ár, auk bókar Berthelsens: smásagnasafnið Skriva i sandin eftir Marjun Syderbø Kjelnæs frá Færeyjum og skáldsagan Með heiminn í vasanum eftir Margréti Örnólfsdóttur.

Berthelsen hlýtur að launum 60 þúsund danskar krónur eða um 1,2 milljónir íslenskra króna. Ólína Þorvarðardóttir, alþingismaður og varaformaður Vestnorræna ráðsins, afhenti Berthelsen sigurlaunin.

Ljósa barnið er fyrsta unglingabókin sem Berthelsen skrifar. Bókin gerist á síðari hluta átjándu aldar og lýsir baráttu veiðimannasamfélagsins við grimma náttúru. Í umsögn dómnefndar segir að frásögnin sé spennandi og grípandi og gefi ungum lesendum góða innsýn í grænlenskan menningararf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.