Menning

Ari flýgur aftur til Svíþjóðar

gengur vel í svíþjóð Uppistand Ara Eldjárn hefur fallið vel í kramið hjá Svíunum.fréttablaðið/gva
gengur vel í svíþjóð Uppistand Ara Eldjárn hefur fallið vel í kramið hjá Svíunum.fréttablaðið/gva
Sænski uppistandarinn Johan Glans hefur boðið Ara Eldjárn að hita upp fyrir sig á sex sýningum til viðbótar.

Ari hefur þegar hitað upp fyrir Glans á átta sýningum og gekk það svo vel að nærveru hans var óskað á nýjan leik. Uppistandarinn flýgur út til Svíþjóðar í dag og verða sýningarnar haldnar um helgina fyrir framan tuttugu þúsund manns í handboltahöll í borginni Lundi.

„Þeir eru alveg að kveikja á þessu,“ segir Ari, spurður út í viðtökur Svíanna við uppistandi hans. Grínið er samt ekki sniðið að Svíunum heldur er það alþjóðlegt með norrænu ívafi.

Fyrir vikið verður Ari áfram fjarri góðu gamni frá uppistandssýningum Mið-Íslands í Þjóðleikhússkjallaranum. Þorsteinn Guðmundsson hleypur í skarðið fyrir hann eins og síðast. „Ég neyðist til að stíga til hliðar en Þorsteinn kemur í staðinn. Hann er orðinn staðgengillinn minn. Ég vonast til að geta leyst hann sjálfur af síðar,“ segir hann og hlær.

Ari gaf út Humar-gríndisk fyrir jól og seldist hann upp. „Hann var nú ekki gefinn út í svakalega stóru upplagi, kannski þrjú hundruð eintökum. Hann var bara viku í sölu og ég hefði kannski getað selt meira ef ég hefði gefið hann út fyrr.“ - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.