Fótbolti

Keypti Katar HM 2022?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Blatter tilkynnir í desember árið 2010 að Katar verði gestgjafi HM 2022.
Blatter tilkynnir í desember árið 2010 að Katar verði gestgjafi HM 2022. Nordic Photos / Getty Images
Franska blaðið France Football segist hafa sannanir sem sýni að fulltrúar Katar hafi keypt atkvæði í kosningunni um HM 2022 á sínum tíma.

France Football er eitt virtasta knattspyrnurit heims en liðið stendur að hinni árlegri kosningu um Gullboltann, sem leikmaður ársins fær, ásamt Alþjóðaknattspyrnusambandinu, FIFA.

En nú veltir blaðið því upp hvort að æðstu ráðamenn innan FIFA séu svo spilltir að þeir hafi sumir hverjir selt Katar atkvæði sín fyrir háar fjárhæðir.

France Football framkvæmdi sína eigin rannsókn á atkvæðagreiðslunni sem átti sér stað árið 2010 - tólf árum áður en keppnin í Katar fer fram. Bandaríkin, Suður-Kórea, Japan og Ástralía vildu einnig fá keppnina en þurftu að láta í minni pokann.

Nú heldur blaðið því fram að þeir Issa Hayatou og Jacques Anouma hafi selt atkvæði sín fyrir eina og hálfa milljón dollara (194 milljónir kr.) hvor en þeir eru báðir frá afríska knattspyrnusambandinu.

Katararnir munu einnig hafa eytt 1,25 milljónum (161 milljón kr.) árið 2010 til að tryggja sér fjögur afrísk atkvæði úr framkvæmdarstjórn FIFA.

Blaðið heldur því einnig fram að Nicolas Sarkozy, þá forseti Frakklands, hafi farið á fram það við landa sinn, Michel Platini (forseta UEFA), að styðja boð Katars af pólitískum ástæðum.

Fullyrt er að þeir Sarkozy og Platini hafi hitt Tamim Bin Hamed Al Thani, sjeik í Katar, að máli og farið fram á að franskur fótbolti fengi eitthvað í staðinn fyrir sinn stuðning. Ári síðar keypti fjárfestingafélag í Katar 70 prósenta hlut í Paris Saint-Germain sem telst í dag eitt ríkasta knattspyrnufélag heims.

Enn sem komið er hafa engar sannanir borist fyrir þessum fullyrðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×