Menning

Vesturport og Steinar Bragi í samstarf

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Steinar Bragi og Rakel Garðarsdóttir
Steinar Bragi og Rakel Garðarsdóttir
Vesturport gaf frá sér í dag stiklu, sem sjá má hér að neðan, til þess að kynna nýja bók Steinars Braga og Rakelar Garðarsdóttur, Reimleikar í Reykjavík.

Bókin er væntanleg í nóvember.

Rakel Garðarsdóttir, framkvæmdastýra Vesturports, hyggst framleiða sjónvarpsseríu byggða á sömu hugmynd - en Reimleikar í Reykjavík er byggð á sönnum atburðum úr borginni.

Þetta er jafnframt í fyrst sinn sem Vesturport og Steinar Bragi starfa saman.

Ekki liggur fyrir hvenær von er á sjónvarpsseríunni, en samkvæmt heimildum Vísis hefur undirbúningur þegar hafist.

Serían verður sýnd á RÚV.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.