Menning

Nýtt nám hjá LHÍ í samstarfi við atvinnuleikhúsin í Reykjavík

HÞT skrifar
„Þessi námsleið leysir gamla Nemendaleikhúsið af hólmi," segir Steinunn Knútsdóttir, deildarforseti Leiklistar- og dansdeildar Listaháskóla Íslands. Hún á við nýja námsbraut skólans sem er diplómanám á meistarastigi í leiktúlkun.

Námið er eins árs starfsnám og er starfrækt í samstarfi við Borgarleikhúsið og Þjóðleikhúsið svo að nemandinn gengur inn í leikhóp hússins.

„Leikaranám skólans var áður fjögurra ára nám en er nú orðið að þriggja ára bakkalárnámi," segir Steinunn. Á fjórða ári námsins var starfrækt svokallað Nemendaleikhús. „Með því rákum við okkar eigið leikhús. Nú sækjum við þá þjónustu til atvinnuleikhúsanna. Þetta er starfsnám með akademískum stuðningi," segir hún en nemarnir njóta leiðsagnar kennara í leiktúlkun, rannsóknaraðferðum og tækni. Á námstímanum fá þeir greidd byrjunarlaun samkvæmt samningum Félags leikara.

Haustið 2014 mun Listaháskólinn einnig hefja meistaranám í sviðslistum.

Inntökuskilyrði nýju námsbrautarinnar er að hafa klárað bakkalársgráðu í leiklist óháð því hvort leikarar hafi numið erlendis eða hér á landi.

Umsóknarfrestur er til 21. janúar og er mikill áhugi fyrir náminu. „Já, enda er þetta algjörlega nýtt af nálinni." Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Listaháskólans.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.