Menning

Skáldverk kvenna í þremur efstu sætum

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Hannah Kent. Íslenskir lesendur eru sólgnir í Náðarstund.
Hannah Kent. Íslenskir lesendur eru sólgnir í Náðarstund. Vísir/GVA
Skáldsagan Náðarstund eftir Hönnuh Kent situr í efsta sæti metsölulista Eymundsson, aðra vikuna í röð. Á hæla henni kemur Afdalabarn Guðrúnar frá Lundi og í þriðja sætinu er smásagnasafn Alice Munro, Lífið að leysa, í þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur. Skáldverk eftir konur virðast því eiga upp á pallborðið hjá lesendum þetta haustið.



Annað sem athygli vekur við listann yfir tíu söluhæstu bækur vikunnar er að í 9. sæti er stórvirki Snorra Baldurssonar, Lífríki Íslands, sem kom út í síðustu viku og hefur heldur betur vakið athygli.



Aðrar bækur á listanum eru Iceland Small World eftir Sigurgeir Sigurjónsson, Síðasti hlekkurinn eftir Fredrik T. Olsson, Rottuborgari eftir David Williams, Amma biður að heilsa eftir Fredrik Backman, Delicious Iceland eftir Völund Snæ Völundarson og Óvættaför 16: Gorgóníuhundurinn Kímon eftir Adam Blade. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×