Innlent

Björk í The Guardian: Ætlar ekki að rífast við „rednecks“ á Íslandi

Bjarki Ármannsson skrifar
Biophilia-kennsluverkefnið hefur vakið athygli víða um heim.
Biophilia-kennsluverkefnið hefur vakið athygli víða um heim. Myndir/Aðsendar
Biophilia-kennsluverkefnið, sem þróað er af söngkonunni Björk Guðmundsdóttur, er til umfjöllunar í grein á vef breska blaðsins The Guardian í dag. Þar má einnig sjá nokkrar tilvitnanir úr væntanlegu viðtali The Observer, systurblaðs The Guardian, við Björk.

Biophilia-verkefnið er viðamikið verkefni sem byggir á þátttöku fræðimanna, vísindamanna, listamanna, kennara og nemenda á öllum skólastigum. Það stefnir að því að nota sköpun sem menntunar- og rannsóknaraðferð þar sem náttúruvísindi, tónlist og tækni eru tengd saman á nýstárlegan hátt. Líkt og greint var frá nýverið, hafa íslensk stjórnvöld óskað eftir samstarfi við hin Norðurlöndin um að þróa verkefnið frekar. Til stendur að koma verkefninu á námsskrá í Norðurlöndunum.

Frá þessu er sagt í greininni á The Guardian, en þar segir Björk frá því hvernig óformlegar tilraunir með Biophilia í kennslustofum á Íslandi hefur notið vinsælda.

„Börn með athyglisbrest eða lesblindu kunna að meta verkefnið,“ segir Björk í viðtalinu, „vegna þess að það er brotthvarf frá dæmigerðu íslensku námsskránni. Því miður þýðir það að við þurfum að koma saman og búa til námsskrá, sem er mótsögn.“

Greinin segir einnig frá tónleikunum Stopp! Gætum garðsins sem fóru fram í Hörpu í mars síðastliðnum og voru haldnir í þágu íslenskrar náttúru, meðal annars á vegum Bjarkar. Um 35 milljónir íslenskra króna söfnuðust á tónleikunum.

„Það þykir mikill peningur á Íslandi,“ segir Björk. Hún ítrekar þá áætlun aðstandenda tónleikanna að koma upp þjóðgarði á miðhálendinu. „Við höfum ákveðið að við ætlum að gera það. Í staðinn fyrir að rífast við „rednecks“ á Íslandi, ætlum við bara að gera það sjálf.“


Tengdar fréttir

Björk og félagar hafa safnað 35 milljónum

Á blaðamannafundi í Hörpuhorni í dag kom fram að aðstandendur Stopp Gætum garðsins! vilji árétta markmið og tilgang þeirra viðburða sem eiga sér stað í dag, þ.e.: Viðhafnarsýningar Noah í Sambíóunum Egilshöll og tónleikum í Eldborg.

Hittast vegna Biophilia-verkefnis

Ísland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á þessu ári. Í því felst m.a. að leiða ýmis norræn samvinnuverkefni og er Biophilia-kennsluverkefnið eitt af þeim.

Plata Bjarkar verður ópera

Óperu- og leikhúsið La Monnaie De Munt í Belgíu er nú með í bígerð óperu sem byggð er á plötunni Medúllu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×