Erlent

Lík tveggja barna fundust í frysti í Detroit

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá Detroit.
Frá Detroit. Vísir/AP
Lögregla í Detroit í Bandaríkjunum hefur handtekið konu eftir að lík tveggja barna hennar fundust í frystikistu á heimili þeirra. Líkin fundust við útburð á heimilinu, að því er CNN greinir frá.

Konan er enn í haldi lögreglu en hún hefur ekki verið nafngreind. Lögregla segir strák og stúlku hafa verið í frystinum, strákurinn um það bil ellefu ára og stúlkan um það bil fjórtán. Tvö eldri systkini þeirra bjuggu einnig á heimilinu en þeim hefur verið komið í umsjá yfirvalda.

Bæði líkin voru geymd í plastpoka. Lögregla segir að enn sé of snemmt til að segja til um hvað gerðist en óskar eftir því að allir sem búi yfir upplýsingum um glæpinn stígi fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×