Erlent

Lík fimm ungbarna fundust á heimili í Frakklandi

Atli Ísleifsson skrifar
Hjónin hafa ekki komið við sögu lögreglu áður.
Hjónin hafa ekki komið við sögu lögreglu áður. Vísir/AFP
Lögregla í Frakklandi hefur fundið lík fimm ungbarna á heimili fjölskyldu í bænum Louchats, nærri Bordeaux á vesturströnd landsins. Foreldrarnir hafa verið teknir höndum.

Eftir að lögregla fann lík ungs barns í kælitösku var frekari leit gerð á heimili fjölskyldunnar þar sem fjögur lík til viðbótar fundust í frysti. Le Figaro greinir frá þessu.

Móðirin er 35 ára og hefur verið flutt á sjúkrahús á meðan faðirinn, sem er fertugur bóndi, hefur verið handtekinn. Þau hafa ekki komið við sögu lögreglu áður.

Hjónin eiga tvö börn á lífi, þrettán og fimmtán ára. Lífsýni verða nú tekin úr líkum barnanna til að sannreyna að þau hafi í raun verið börn hjónanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×