Erlent

Fórust þegar lest fór af sporinu á Indlandi

Atli Ísleifsson skrifar
Lestin var á leið frá Dehradun til Varanasi þar hún fór af sporinu nærri bænum Bachhrawan.
Lestin var á leið frá Dehradun til Varanasi þar hún fór af sporinu nærri bænum Bachhrawan. Vísir/AP
Að minnsta kosti 26 fórust og tugir slösuðust þegar farþegalest fór af sporinu í indverska fylkinu Uttar Pradesh í morgun.

Lestin var á leið frá Dehradun til Varanasi þar hún fór af sporinu nærri bænum Bachhrawan.

Fjöldi manna festust í lestarvögnunum og var fjöldi manna sendur á vettvang þar sem beita þurfti klippum til að ná fólki út.

Rannsókn er hafin á tildrögum slyssins en talið er að bilaðar bremsur hafi valdið slysinu eða þá að lestarstjórinn hafi hunsað stöðvunarskyldu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×