Sameinuðu þjóðirnar hyggjast rannsaka dauða Hammarskjöld á ný Bjarki Ármannsson skrifar 30. mars 2015 23:30 Hammarskjöld fórst með flugvél af gerðinni Douglas DC-6 ásamt fjórtán öðrum í Sambíu árið 1961. Vísir
Sameinuðu þjóðirnar hyggjast hefja rannsókn að nýju á dauða Dag Hammarskjöld, fyrrum framkvæmdastjóra samtakanna. Rannsóknin hefur verið boðuð í kjölfar þess að rannsóknarnefnd komst að þeirri niðurstöðu fyrir um einu og hálfu ári að haldbær sönnunargögn séu fyrir því að Hammarskjöld hafi verið ráðinn bani. Dag Hammarskjöld, sænskur diplómati sem tók við stöðu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna árið 1953, lést í flugslysi í Sambíu árið 1961. Þeirri tilgátu hefur oft verið fleygt fram að flugvél hans hafi verið skotin niður en rannsókn Sameinuðu þjóðanna á sínum tíma komst ekki að lokaniðurstöðu í málinu. Í september árið 2013 sagði hinsvegar rannsóknarnefnd skipuð fjölþjóðlegum hópi lögfræðinga að haldbær sönnunargögn væru fyrir því að Hammarskjold hafi verið ráðinn bani. Nefndin segir að Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA) hafi í vörslu sinni hljóðritanir úr stjórnklefa flugvélarinnar sem bendi til þess að hún hafi verið skotin niður. Í skýrslu nefndarinnar var meðal annars greint frá játningu belgísks flugmanns sem segist hafa skotið á vélina og samkvæmt vitnisburði fólks á jörðu niðri sáust leiftrandi ljós á himni rétt áður en vél Hammarskjölds brotlenti. Hammarskjöld var á leið til Austur-Kongó er hann lést til að stýra friðarviðræðum milli stríðandi fylkinga í landinu. Annars vegar sitjandi ríkisstjórn, sem studd var af Sovétríkjunum, og uppreisnarmönnum frá Katanga-héraðinu, sem áttu sér auðuga bakhjarla á Vesturlöndum. Sameinuðu þjóðirnar munu fara yfir hinar nýju upplýsingar sem liggja fyrir í málinu en von er á skýrslu frá þeim í lok júní, að því er BBC greinir frá.
Tengdar fréttir Telja Hammarskjöld hafa verið ráðinn bani Rannsóknarnefnd skipuð fjölþjóðlegum hópi lögfræðinga telur að hefja eigi rannsókn á dauða Dag Hammarskjöld, fyrrum framkvæmdastjóra Sameinu þjóðanna, sem fórst í flugslysi árið 1961. 10. september 2013 06:45 Mest lesið Sendur í leyfi Innlent Alma Möller skellir sér í pólitíkina Innlent Örn í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps Innlent Jón Magnús gefur kost á sér Innlent „Þetta mál er lögregluembættinu til ævarandi skammar“ Innlent Sunnudagurinn í Valhöll gæti orðið úrslitastund fyrir Þórdísi Innlent Ítrekuð brot gegn grunnskólastúlku nauðgun eftir allt saman Innlent Skrifar sundurlyndið ekki bara á Vinstri græn Innlent Hætt hjá SFS og til liðs við Miðflokkinn Innlent Ólafur vill leiða listann Innlent Fleiri fréttir Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu Verðlaunaðir fyrir rannsóknir á áhrifum stofnana á auðlegð þjóða Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ekki grunaður um að hafa ætlað að drepa Trump Vilja endurreist æru þeirra sem neituðu að berjast Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð Sjá meira
Telja Hammarskjöld hafa verið ráðinn bani Rannsóknarnefnd skipuð fjölþjóðlegum hópi lögfræðinga telur að hefja eigi rannsókn á dauða Dag Hammarskjöld, fyrrum framkvæmdastjóra Sameinu þjóðanna, sem fórst í flugslysi árið 1961. 10. september 2013 06:45