Erlent

Lést eftir að hafa sogast inn í flugvélahreyfil

vísir/epa
Flugvallarstarfsmaður Air India lést í dag eftir að hafa sogast inn í flugvélahreyfil á flugvellinum í Mumbai á Indlandi. Slysið átti sér stað þegar verið var að undirbúa vélina fyrir brottför og aðstoðarflugmaður hennar kveikti á hreyflinum. BBC greinir frá.

Ashwani Lohani, stjórnarmeðlimur flugfélagsins, sagði í samtali við indverska fjölmiðla að um sé að ræða sorglegt slys sem verið sé að rannsaka, og sendi fjölskyldu mannsins sínar dýpstu samúðarkveðjur.

Maðurinn hét Ravi Subramanium og var á fertugsaldri. Um borð í vélinni voru rúmlega hundrað manns. Þeim hefur öllum verið boðin áfallahjálp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×