Lífið

Jennifer Lawrence drakk heila vískýflösku fyrir sitt fyrsta kynlífsatriði

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Leikkonan var stressuð fyrir sitt fyrsta kynlífsatriði og tæklaði það á ákveðinn hátt.
Leikkonan var stressuð fyrir sitt fyrsta kynlífsatriði og tæklaði það á ákveðinn hátt. Vísir/Getty
Jennifer Lawrence var gestur spjallþáttastjórnandans Seth Meyers í gærkvöldi. Fór hún um víðan völl en það sem helst hefur vakið athygli var frásögn hennar af því hvernig hún undirbjó sig fyrir sitt fyrsta kynlífsatriði.

Lawrence og Chris Pratt, sem er hvað þekktastur fyrir leik sinn í Guardians of the Galaxy, leika saman í geimtryllinum Passengers. Persónur þeirra eiga greinilega í einhverskonar sambandi og spurði Meyers hvernig hún hafi undirbúið sig undir kynlífsatriði með því að spyrja hvort hún hafi fengið sér glas af einhverju áfengu?

„Glas? Nei, ég drakk viskýflösku,“ sagði Lawrence. „Þetta er svo stressandi. En svo þurfti ég að halda áfram í vinnunni þannig að ég varð bara ótrúlega þunn.“

Passengers kemur út á næsta ári en sjá má hér fyrir neðan lýsingar Jennifer á því hvernig hún undirbjó sig fyrir atriðið.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×