Platini: Var siðanefndin sofandi í fjögur ár? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. desember 2015 14:30 Vísir/Getty
Michel Platini, sem enn er forseti Knattspyrnusambands Evrópu, mun áfrýja niðurstöðu siðanefndar FIFA sem dæmdi hann og Sepp Blatter, fráfarandi forseta FIFA, í átta ára bann á mánudag. Platini fékk greiðslu frá FIFA árið 2011 fyrir meint störf sem hann mun hafa unnið fyrir Sepp Blatter og FIFA nokkrum árum áður. Engin gögn eru hins vegar til sem styðja þá staðhæfingu og því voru þeir dæmdir fyrir spillingu.Sjá einnig: Sepp Blatter og Michel Platini dæmdir í átta ára bann „Hvar var siðanefndin að gera frá 2011, þegar ég fékk borgað, og 2015. Var hún sofandi?“ sagði Platini í stuttu viðtali við AFP-fréttastofuna í Frakklandi. „Svo vaknar hún skyndilega þegar það á að fara að kjósa forseta FIFA og ég er í framboði. Það er alveg ótrúlegt,“ sagði hann. Nýr forseti FIFA verður kjörinn í lok febrúar og þarf Platini að fá banninu aflétt til að geta boðið sig fram. Platini og Blatter ætla báðir að fara með mál sitt fyrir Alþjóðaíþróttadómstólinn [CAS] í Sviss og vonast eftir skjótri niðurstöðu.Sjá einnig: Platini fékk 258 milljónir króna frá FIFA Það er hins vegar ekki víst að málið sé svo einfalt og að þeir þurfi fyrst að fara með sín mál í gegnum áfrýjunardómstól FIFA áður en þeir geta leitað til CAS. Tíminn sé því einfaldlega of naumur fyrir Platini. „Ég mun berjast. En hvað sem gerist að þá hefur orðspor mitt verið saurgað og ég sparkaður í tennurnar. Ég hef verið settur í sama poka og Blatter.“
Fótbolti Mest lesið Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Kristinn: Við vorum geggjaðir Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Körfubolti Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Fótbolti Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Íslenski boltinn Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Fótbolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Sjá meira