Erlent

Reyndi að bana móður sinni fyrir að hafa tekið af sér iPhone-inn

vísir/getty
Tólf ára bandarísk stúlka er nú í haldi lögreglunnar í Colorado fyrir að hafa reynt að verða móður sinni að bana. Stúlkan kvaðst hafa viljað hefna sín á móður sinni fyrir að hafa gert iPhone-farsímann hennar upptækan. Hún gerði tvær tilraunir til þess að koma móður sinni fyrir kattarnef með því að byrla henni klór.

The Independent greinir frá því að móðir stúlkunnar hafi fundið þef af klór úr glasi sem hún var að drekka úr. Þegar hún svo fann klórlykt í annað sinn, úr vatnskaröflu, ákvað hún að ræða við dóttur sína sem viðurkenndi verknaðinn. Stelpan á yfir höfði sér ákæru fyrir tilraun til manndráps.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×