Hyggst herða aðgerðir gegn N-Kóreu Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 19. maí 2015 07:00 John Kerry sparaði ekki stóru orðin er hann ræddi um Norður-Kóreu. Nordicphotos/afp
John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fór mikinn um málefni Norður-Kóreu í heimsókn sinni til höfuðborgar Suður-Kóreu, Seoul, í gær. Kerry sagði að norðurkóreska ríkisstjórnin væri hvergi nærri því að binda enda á kjarnorkuvopnavæðingu ríkisins í ljósi þess hve ítrekað ríkið hefur ögrað alþjóðasamfélaginu nýverið. „Ég held að alþjóðasamfélagið hafi aldrei verið jafnsameinað og nú. Það er forgangsatriði númer eitt að binda enda á kjarnorkuvopnaáætlun Norður-Kóreu,“ sagði Kerry. Kerry sagði enn fremur að bandaríska ríkisstjórnin muni funda með þeirri kínversku í júní um næstu skref í þessum málum. Talsmaður utanríkisráðuneytis Kínverja, Hong Lei, neitaði að tjá sig um ummæli utanríkisráðherrans bandaríska. Kínverjar hafa oft og lengi beitt neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þegar aðgerðir gegn Norður-Kóreu hafa verið til umræðu. „Ríkisstjórn Norður-Kóreu er eitt alversta dæmið um algjöra vanvirðingu við mannréttindi og mannfólk alls staðar í heiminum. Hún sýnir af sér viðurstyggð, ógeð og hrylling að geðþótta leiðtogans,“ sagði Kerry að lokum. Allsherjarráð Sameinuðu þjóðanna hefur lagt til að ákæra ríkið fyrir mannréttindabrot en líklegt þykir að Kínverjar beiti neitunarvaldi gegn slíkri kæru.
Mest lesið Faðirinn hafi ætlað að skilja hann eftir á flugvellinum Innlent Sigurður Ingi fær innviðaráðuneytið og Bjarni hin tvö Innlent Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Erlent Aðstoðarmenn ráðherra þurfa nú að líta í kringum sig Innlent Nýr aðstoðarmaður rétt fyrir ríkisstjórnarslit Innlent Fimm milljarða dómur ekki talinn varða mikilvæga hagsmuni Innlent Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Erlent „Jafn óábyrgt og að slíta stjórninni“ Innlent Funda um lausu ráðuneytin og boðað til ríkisstjórnarfundar Innlent „Kemur í ljós“ hvort boðaðir ráðherrar mæti Innlent Fleiri fréttir Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu Verðlaunaðir fyrir rannsóknir á áhrifum stofnana á auðlegð þjóða Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ekki grunaður um að hafa ætlað að drepa Trump Vilja endurreist æru þeirra sem neituðu að berjast Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð „Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Gripu eldflaugarþrep á stærð við Hallgrímskirkju með vélarmi Vill friðargæsluliðið út úr Suður-Líbanon strax Óútskýrður dauði ungrar blaðakonu í haldi Rússa Segja átta manna fjölskyldu hafa fallið í loftárás Ísraela Hundrað og fjögur ríki lýsa yfir stuðningi við Guterres Afnema tímabundið réttinn til að óska hælis Sjá meira