Erlent

Fyrrverandi tennisstjarna dæmd fyrir barnaníð

Birgir Olgeirsson skrifar
Bob Hewitt.
Bob Hewitt. Vísir/Getty
Fyrrverandi tennisstjarnan Bob Hewit hefur verið sakfelldur fyrir að nauðga tveimur stúlkum á níunda áratug síðustu aldar. Dómur í málinu féll í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í dag þar sem staðfest var að Hewitt nauðgaði tveimur fyrrverandi tennisnemendum sínum, þeim Theresa "Twiggy" Tolken og Suellen Sheehan á níunda áratug síðustu aldar. Hann var einnig sakfelldur fyrir að að áreita konu kynferðislega á tíunda áratug síðustu aldar en nafn konunnar hefur ekki verið opinberað.

Tolken og Sheehan báru vitni við réttarhöldin en sú fyrrnefnda sagði Hewitt hafa neytt sig til munnmaka fyrir 34 árum þegar hún var tólf ára gömul. Hewitt á að baki níu sigra í tvíliðaleik á stórmótum og sex sigra á stórmótum í tvenndarleik á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×