Fótbolti

Telur of mikið kynlíf eyðileggja deildina

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
U-20 ára landslið Gana er hér í landsleik.
U-20 ára landslið Gana er hér í landsleik. vísir/getty
Fyrrum landsliðsþjálfari Gana segir að ungir knattspyrnumenn þjóðarinnar geti ekki staðist hinar fögru konur landsins og það komi niður á fótboltanum í landinu.

Malik Jabir hefur verulegar áhyggjur af leikmönnunum í úrvalsdeildinni í Gana sem hann segir ekki fá næga hvíld því þeir stundi of mikið kynlíf.

„Fullt af strákum í dag geta ekki spilað 90 mínútna leik því þeir verða of auðveldlega þreyttir. Það er ástæða fyrir því. Þeir sofa ekki nóg, æfa ekki nóg og stunda of mikið kynlíf,“ sagði Jabir ákveðinn.

„Það er mikið af fallegum ungum konum í Gana og þeir geta ekki látið þær í friði.“

Verður áhugavert að sjá hvort knattspyrnusamband Gana tækli þetta mál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×