Fótbolti

Song ekki lengur í dái

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Song í einum af sínum fjölmörgu landsleikjum.
Song í einum af sínum fjölmörgu landsleikjum. vísir/getty
Kamerúninn Rigobert Song veiktist alvarlega á dögunum og er enn í lífshættu.

Hinn fertugi Song fékk heilablóðfall í heimalandi sínu og féll í kjölfarið í dá. Hann er vaknaður úr dáinu en er enn í lífshættu.

Nú á að flytja hann frá Kamerún til Frakklands þar sem hann getur fengið betri læknisaðstoð.

Song er núverandi landsliðsþjálfari Tjad en hann átti á sínum tíma glæsilegan feril í boltanum.

Spilaði eina 137 landsleiki fyrir Kamerún og spilaði meðal annars með Liverpool, West Ham og Galatasaray á ferlinum sem lauk árið 2010 hjá Trabzonspor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×