Fótbolti

Balotelli skoraði og var svo rekinn af velli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Balotelli fagnar marki sínu í gær.
Balotelli fagnar marki sínu í gær. vísir/getty
Mario Balotelli var hetja Nice í franska boltanum í gær en tókst samt líka að láta reka sig af velli.

Balotelli skoraði sigurmark Nice gegn Lorient á 86. mínútu. Hann lét svo teyma sig í vitleysu í uppbótartíma sem endaði með því að hann fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Nice hefur farið frábærlega af stað í franska boltanum og er ósigrað á toppi deildarinnar eftir átta leiki.

Balotelli hefur spilað vel fyrir liðið og á stóran þátt í árangrinum. Hann verður aftur á móti í stúkunni í næsta leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×