Bournemouth vann upp tveggja marka forskot Liverpool í ótrúlegum sigri | Sjáðu mörkin Kristinn Páll Teitsson skrifar 4. desember 2016 15:15
Liverpool glutraði niður tveggja marka forskoti í 3-4 tapi gegn Bournemouth á Dean Cort í fyrri leik dagsins í enska boltanum. Liverpool náði í tvígang tveggja marka forskoti í leiknum en heimamenn neituðu að gefast upp. Liverpool komst 2-0 yfir með tveimur mörkum á skömmum tíma um miðbik fyrri hálfleiks. Eftir langar sendingar inn fyrir vörnina náðu Sadio Mane og Divock Origi að koma boltanum í netið og var staðan góð fyrir gestina í hálfleik. Varamaðurinn Ryan Fraser krækti í vítaspyrnu fyrir Bournemouth á 56. mínútu aðeins einni mínútu eftir að hafa komið inn sem varamaður og minnkaði Callum Wilson metin. Emre Can virtist gera aftur út um leikinn fyrir Liverpool stuttu síðar með skoti en Fraser hafði ekki sagt sitt síðasta. Hann minnkaði muninn á 76. mínútu með skoti af vítateigslínunni og lagði svo upp jöfnunarmarkið tveimur mínútum síðar fyrir Steve Cook. Bæði lið fengu færi til þess að stela sigrinum á seinustu mínútum leiksins en það reyndist vera lánsmaðurinn frá Chelsea, Nathan Ake, sem skoraði sigurmarkið á 93. mínútu eftir mistök Loris Karius í marki Liverpool. Þetta var fyrsti sigur Bournemouth gegn Liverpool í mótsleik en með sigrinum lyfti Bournemouth sér upp í tíunda sæti deildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Varð pabbi sjö mánuðum eftir að hann lést Sport Glórulaus tækling Gylfa Þórs Íslenski boltinn Gæti HSÍ orðið gjaldþrota: „Okkar að sjá til þess að svo verði ekki“ Handbolti Sjáðu markið umdeilda í Garðabæ: „Ekki var hann hræddur við Örvar?“ Íslenski boltinn Borgaði ósáttum aðdáanda eftir rothögg Stefáns Inga Fótbolti „Vælum og öskrum þó við meiðum okkur ekki neitt“ Íslenski boltinn „Síðast þegar ég sá svona atriði var það Petersson í Austurríki“ Handbolti „Er allavega engin þreyta í mér“ Fótbolti Hittu misáhugasama Íslendinga: „Ég á selló, ég fylgist ekki með fótbolta“ Fótbolti „Get ekki setið við hliðina á þér lengur“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu hitt rauða spjaldið sem Gylfi hefur fengið á ferlinum Settu met sem enginn vill eiga Of ungur til að auglýsa veðmál Newcastle heldur áfram að klífa töfluna Sóknarlína Chelsea veldur áhyggjum Van Dijk tjáir sig um samningaviðræðurnar Rekinn sem slakasti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Neville hélt þrumuræðu um vélmennaboltann sem er að eyðileggja leikinn Guardiola hneykslaður á söngvum um móður Fodens „Ég horfði á leikinn og sparkaði tebollanum í gólfið“ Ekkert mark í grannaslagnum Chelsea tapaði stigum í markalausum Lundúnaslag Tottenham sendi Southampton niður í b-deildina Fyrsta deildartap Liverpool síðan í september „Ég er 100% pirraður“ Mikið breytt lið Villa vann mikilvægan sigur Ekki góður dagur fyrir Meistaradeildardrauma Brighton og Bournemouth Enskir fjölmiðlar segja Chelsea hafa brotið reglur UEFA Everton gerði grönnunum greiða með því að taka stig af Arsenal Amorim: Klikkun að halda að Man United geti unnið ensku úrvalsdeildina „Sorgardagur fyrir Manchester City“ Bruno bestur í mars Fordæma morðhótanir sem Tarkowski hafa borist De Bruyne yfirgefur City eftir tímabilið Húðflúr stuðningsmanns Newcastle gæti orðið algjörlega gagnslaust Haaland flúði Manchester borg Chelsea upp fyrir Man. City og Newcastle Afmæli barnanna og Liverpool-leikir það eina í dagatalinu Fyrsti svarti dómarinn í ensku úrvalsdeildinni lærir að ganga á ný Tímabilinu lokið hjá Gabriel Sjá meira