Öryggis-Víðir hjálpaði ljósmyndara Vísis og tók þessa mynd
Eyjamaðurinn sagðist ekki getað þakkað sjúkrateyminu nóg fyrir að halda öllum heilum og starfsliðinu í heild fyrir það sem það hefur gert í Frakklandi. Benda skal réttilega á að ekkert lið er með færra starfsfólk en KSÍ á EM en þar vinnur hver á við að minnsta kosti tvo.
Allir eru tilbúnir að gera hvað þeir geta til að hjálpa til og á það líka við um aðstoð til fjölmiðlamanna. Það sást best á viðtalssvæðinu fyrir æfingu landsliðsins í Annecy í dag.
Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, vildi svo endilega ná mynd í gegnum allt viðtalssvæðið en komst ekki í stöðu til þess vegna grindverks sem skilur að leikmenn og fjölmiðlamenn.
Það var því ekkert annað í stöðunni en að biðja Víði Reynisson, öryggisstjóra íslenska hópsins, um að taka vélina og ná skotinu sem Vilhelm langaði svo að fá.
Öryggis-Víðir tók að sjálfsögðu vel í beiðnina og náði þesari fínu mynd sem má sjá hér að neðan.
Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).
Tengdar fréttir
Ragnar: Verður að vera alvöru kall sem skammar okkur
Ragnar Sigurðsson um skammirnar sem leikmenn fengu fyrir að mæta of seint í kvöldmat á hóteli íslenska landsliðsins í fyrrakvöld.
Strákarnir fengu frí frá öllu í gær: „Við erum stundum eins og eldri borgarar“
Strákarnir okkar eru búnir að vera saman öllum stundum í einn mánuð og þá þarf að finna sér eitthvað að gera.
Jón Daði og Ragnar ekki í hættu
Níu leikmenn íslenska landsliðsins fara í leikbann fái þeir gult spjald gegn Frökkum.
Nýkominn heim frá EM í Frakklandi en fær ekki mikið frí
Niall McGinn, framherji Aberdeen og norður-írska landsliðsins, fær ekki mikið sumarfrí en hann er nýkominn heim frá Evrópumótinu í Frakklandi.
Aron Einar tók því rólega á æfingu
Tók ekki þátt í hefðbundinni upphitun með félögum sínum í íslenska landsliðinu.
Heimir: Einbeitingin ekki í lagi ef við eyðum öllum tímanum í að vera frægir
Lars Lagerbäck lét strákana okkar heyra það á blaðamannafundi í gær fyrir að vera ekki með 100 prósent einbeitingu eftir sigurinn á Englandi.