Fótbolti

Sigur í fyrsta Meistaradeildarleik Glódísar með Eskilstuna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Glódís og stöllur hennar í vörn Eskilstuna stóðu fyrir sínu.
Glódís og stöllur hennar í vörn Eskilstuna stóðu fyrir sínu. vísir/eyþór
Glódís Perla Viggósdóttir lék sinn fyrsta leik fyrir Eskilstuna United í Meistaradeild Evrópu þegar liðið vann 1-0 sigur á Glasgow City á heimavelli sínum, Tunavallen, í kvöld.

Þetta var fyrri leikur liðanna í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Seinni leikurinn fer fram í Skotlandi eftir viku.

Mimmi Larsson skoraði eina mark leiksins á 52. mínútu. Eskilstuna spilaði af skynsemi eftir þetta og hélt marki sínu hreinu.

Varnarleikurinn var öllu betri en um helgina þegar Eskilstuna fékk á þrjú mörk gegn Djurgården í sænsku deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×