Fótbolti

Rodriguez fær líflátshótanir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
James Rodriguez í leik með Real Madrid.
James Rodriguez í leik með Real Madrid. vísir/afp
Móðir kólumbísku knattspyrnustjörnunnar James Rodriguez hefur nú stigið fram og greint frá fjölda líflátshótana sem sonur hennar hefur verið að fá.

Hótanirnar hafa komið frá hópi sem kallar sig Legion Holk og nokkrar þeirra hafa meðal annars komið á Twitter.

Bandaríska alríkislögreglan, FBI, er með málið til skoðunar.

Á einni myndinni þar sem verið er að hóta Rodriguez er mynd af kassa með byssum og byssukúlum. Á kassanum stendur síðan: „James Rodriguez. Legion Holk er að fylgjast með þér“.

Í tístunum hefur líka verið sagt að þeir séu á leiðinni heim til hans til að drepa hann. Að hann sé mannlegt rusl. Móðir hans hefur líka fengið skilaboð. Meðal annars um hvort hún vilji lýsingar á því hvernig þeir ætli sér að drepa son hennar.

Ekki er vitað af hverju þessi hópur hatar Rodriguez af slíkum krafti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×