Fótbolti

14 ára samherji Kolbeins lék sinn fyrsta leik

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Frægir samherjar Kapi
Frægir samherjar Kapi vísir/getty
Mustafa Kapi kom inn á sem varamaður þegar Galatasaray lagði Levski Sofia 2-0 í æfingaleik í dag sem er merkilegt fyrir þær sakir að Kapi er aðeins 14 ára gamall.

Kapi sem er fæddur 2002 kom inn á þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum. Kolbeinn Sigþórsson leikur með Galatasary en er meiddur og því hvorki með tyrkneska liði sínu né Íslandi gegn Tyrklandi á morgun.

Josué kom Galatasaray yfir á 12. mínútu og Hamit Altintop skoraði seinna markið á 68. mínútu en mörkin má sjá hér að neðan.

Mörk Galatasaray: Hinn ungi Kapi:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×