„Newcastle getur orðið jafn stórt og Man. City“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. október 2017 22:15 Newcastle hefur farið vel af stað í ensku úrvalsdeildinni í vetur. vísir/getty
Shay Given segir að Newcastle United geti orðið jafn stórt og Manchester City ef kaup Amöndu Staveley á félaginu ganga í gegn. Mike Ashley hefur sett Newcastle á sölu og Staveley, sem er vellauðug kaupsýslukona, vonast til að klára kaupin á félaginu fyrir jól. „Vonandi gengur yfirtakan í gegn því ég skil ekki af hverju Mike Ashley keypti félagið á sínum tíma. Ef Newcastle fær fjárhagslegan stuðning eru engin takmörk fyrir því hvert félagið getur farið,“ sagði Given sem varði mark Newcastle í 12 ár áður en hann fór til City 2009.Amanda Staveley ætlar að kaupa Newcastle.vísir/gettyGiven segir að Newcastle geti klifið metorðastigann jafn hratt og City hefur gert á undanförnum árum. „Heimavöllurinn og stuðningurinn er til staðar. Ég veit ekki mikið um Amöndu Staveley en ég hef heyrt að hún eigi fjölskyldu frá Newcastle og ef hún tekur félagið yfir er raunhæft fyrir Newcastle að verða jafn stórt og City,“ sagði Given. „Sjáðu bara hvar City var þegar Sjeik Mansour keypti félagið. Þeir voru í neðri hluta ensku úrvalsdeildarinnar en sjáðu hvar þeir eru núna. Þeir eru líklegir til að vinna Englandsmeistaratitilinn og Meistaradeild Evrópu.“ Newcastle, sem er nýliði í ensku úrvalsdeildinni, hefur byrjað tímabilið vel. Newcastle, sem situr í 7. sæti deildarinnar, mætir Burnley á Turf Moor á mánudaginn.
Enski boltinn Mest lesið Aðeins tveir af fimm keppendum Íslands mæta á Setningarhátíð ÓL Sport Banna Verstappen að hanga í tölvunni langt fram eftir nóttu Formúla 1 „Þurfa að nálgast hann eins og Arsenal nálgaðist Haaland“ Fótbolti Aðsúgur að Gumma Torfa og bjórinn á þrotum Fótbolti Gummi Ben um bekk KR og skilaboð þjálfarans: Það eru krakkar þarna Íslenski boltinn „Ég held að stuðningsmenn okkar séu stressaðir“ Fótbolti „Það var ekki planið hjá okkur“ Fótbolti „Frammistaðan veitir von fyrir seinni leikinn“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - St. Mirren 0-0 | Tíu Valsmenn héldu út Fótbolti Njarðvíkingar hægðu á Þrótturum Fótbolti Fleiri fréttir Fulham gerir Smith Rowe að dýrasta leikmanni í sögu félagsins Réðst á leikmann Wrexham eftir tvær mínútur í æfingaleik Kvennalið Man. Utd. býr og starfar á æfingasvæði enska landsliðsins Tottenham að fá landa Sons Aston Villa eyðir mest af öllum félögum í Evrópu Ederson spilaði æfingaleik en Pep veit ekki hvort hann verði áfram Aldrei eins margar ábendingar um mismunun á einu tímabili Danny Drinkwater fjárfesti illa og starfar nú sem iðnaðarmaður „Það verða engin vandræði“ þegar Enzo mætir aftur til Chelsea Ætlar að þagga niður í þeim sem segja ljóta hluti um sig á veraldarvefnum PSG sýnir Sancho óvænt áhuga Leikmaður Man City neitar sök í eiturlyfjamáli Guardiola: Nei, Kevin er ekkert að fara Státar sig af gengi United liðsins undir hans stjórn Ákærður Barton segir Bretland verðandi bananalýðveldi Sá leikjahæsti tekur skóna óvænt fram á nýjan leik Onana leysir Luiz af hólmi á Villa Park Chelsea kaupir Kana Grínuðust með nýja varabúning Arsenal Ten Hag vill halda McTominay Kóngurinn Cantona: „Þarft að njóta leiksins og hafa ástríðu fyrir honum“ Íslendingar aftur til Englands: Hver er næstur? Segir Rangnick hafa haft rétt fyrir sér varðandi vandamál Man Utd Samþykktu tilboð Arsenal í Calafiori Sjáðu ótrúlegt sigurmark Stefáns Teits og félaga gegn Liverpool Rashford missir bílprófið í hálft ár Vill frekar fara upp um deild en að vinna til Emmy-verðlauna Willum Þór keyptur af Birmingham fyrir metverð Manchester City kaupir leikmann sem var í „þeirra“ eigu Stjóri West Ham vill ólmur fá Kanté Sjá meira