Fótbolti

Óprúttnir aðilar sögðu að Messi hafi gengið til liðs við Real Madrid

Lionel Messi er ekki á leið til Real Madrid
Lionel Messi er ekki á leið til Real Madrid visir/epa
Mörgum áhugamönnum um knattspyrnu var brugðið í dag þegar að Twitter síða spænska stórliðsins Real Madrid birti að Lionel Messi, leikmaður Barcelona, hafi gengið til liðs við félagið.

Þessi færsla vakti gífurlega athygli enda er Messi leikmaður Barcelona, erkifjenda Real Madrid.

Hinsvegar var maðkur í mysunni en greinilegt var að brotist hafi verið inn á Twitter aðgang Madrídarliðsins og grunað er að þar að verki voru sömu aðilar og brutust inn á Twitter aðgang Barcelona og tilkynntu að Angel Di Maria væri genginn til liðs við Katalóníufélagið fyrir fáeinum dögum.

Færslan var inni á síðunni í rúma klukkustund áður en að starfsmenn Real Madrid eyddu færslunni út.

Hér að neðan er skjáskot af færslunni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×