Fótbolti

Kjöldrögn í KR-slagnum í Danmörku

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Hreint lak hjá Rúnari í dag
Hreint lak hjá Rúnari í dag Vísir/Getty


Vesturbæingarnir Rúnar Alex Rúnarsson og Kjartan Henry Finnbogason öttu kappi í dönsku úrvalsdeildinni í dag þegar Nordsjælland fékk Horsens í heimsókn.

 

Fyrirfram var búist við hörkuleik þar sem um er að ræða liðin í þriðja og fimmta sæti deildarinnar.

 

Lítil spenna var hins vegar í leiknum sem lauk með 6-0 sigri Rúnars og félaga í Nordsjælland og voru úrslitin í raun ráðin í leikhléi þegar staðan var 4-0.

 

Kjartan Henry hóf leik í framlínu Horsens en var skipt af velli á 74.mínútu. Rúnar Alex stóð á milli stanganna hjá Nordsjælland allan leikinn.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×