Netanyahu lætur af embætti utanríkisráðherra Atli Ísleifsson skrifar 17. febrúar 2019 19:41 Israel Katz og Benjamín Netanyahu. Getty
Nú þegar tæpur tveir mánuðir eru þar til Ísraelar ganga að kjörborðunum og kjósa sér nýtt þing hefur Benjamín Netanyahu forsætisráðherra tilkynnt að hann láti af embætti utanríkisráðherra. Netanyahu greindi frá því í morgun að hann hafi fengið Israel Katz, ráðherra samgöngumála og leyniþjónustumála, til að sinna embætti utanríkisráðherra þar til ný stjórn verður mynduð eftir kosningar sem fram fara 9. apríl. Forsætisráðherrann Netanyahu hefur sætt nokkurri gagnrýni þar sem hann þykir sinna helst til of mörgum ráðherraembættum, en hann er einnig ráðherra heilbrigðismála og varnarmála. Hann tók að sér embætti utanríkismála árið 2015. Katz er reynslumikill stjórnmálamaður og samflokksmaður Netanyahu í Likud. Katz hefur sjálfur sagst stefna að því að verða forsætisráðherra en kveðst þó ekki ætla að skora Netanyahu á hólm fyrir kosningarnar í apríl. Hinn 69 ára Netanyahu hefur gegnt embætti forsætisráðherra í Ísrael í alls þrettán ár. Hann sætir nú þrýstingi vegna ásakana um spillingu auk þess að ríkisstjórn hans er einungis með mjög nauman meirihluta á þingi. Ákveðið var að flýta kosningum um sjö mánuði eftir að einn flokkurinn sagði skilið við stjórnina.
Ísrael Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Erlent Segir ÍR að slökkva á skiltinu Innlent Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Innlent „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Erlent Fleiri fréttir „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Sjá meira