Danskur verktaki fær flugvelli á Grænlandi Kristján Már Unnarsson skrifar 14. júlí 2019 10:45 Flugbrautin í Nuuk fer úr 950 metrum upp í 2.200 metra. Grafík/Kalaalit Airports.
Danska verktakafyrirtækið Munck Gruppen varð hlutskarpast í útboði um gerð nýrra flugvalla í Nuuk og Ilulissat á Grænlandi. Tilboðsfjárhæðir hafa ekki verið gefnar upp en í frétt grænlenska fréttamiðilsins Sermitsiaq kemur fram að júlímánuður verði nýttur til að ganga frá efnisatriðum samninga og stefnt sé að undirritun í ágústmánuði. Þrjú tilboð bárust. Hin tvö voru frá kanadíska félaginu Pennecon Dextor og hollenska félaginu BAM. Alls var sex verktakasamsteypum boðið að taka þátt í útboðinu eftir forval en þrjár þeirra skiluðu ekki inn tilboði, þeirra á meðal kínverskur verktaki, en aðkoma hans olli pólitískum titringi meðal NATO-þjóða. Þá hafði dansk íslenska samsteypan Aarsleff/Ístak áður tilkynnt að hún hefði fallið frá þátttöku í útboðinu.Grafísk mynd af flugvellinum í Ilulissat eftir stækkun. Ef grannt er skoðað sést að Grænlendingar gera ráð fyrir flugvélum frá Icelandair og Air Iceland Connect.Grafík/Kalallit Airports.Framkvæmdir eiga að hefjast strax í haust við báða flugvelli. Umsvifin verða fyrst mest í Nuuk en stefnt að því að næsta vor verði framkvæmdir einnig komnar á fullt í Ilulissat. Báðir flugvellir eiga að vera tilbúnir fyrir árslok 2023, er haft eftir Peter Wistoft, framkvæmdastjóra Kalaallit Airports, flugvallafélags Grænlands, í fréttatilkynningu. Hann upplýsir ennfremur að félagið hafi nú samið um lántöku vegna framkvæmdanna, sem nemur 8,5 milljörðum íslenskra króna, frá danska ríkinu og Norræna fjárfestingabankanum. Sjá einnig hér: Grænlendingar hefja mestu uppbyggingu í sögu landsins Flugvallagerðin verður stærsta innviðauppbygging í sögu Grænlands og var áætlað í fyrra að hún myndi kosta um 70 milljarða íslenskra króna. Vellirnir í Nuuk og Ilulissat fá nýja flugstöð og 2.200 metra flugbraut, til að geta tekið við þotuumferð, en núverandi brautir eru aðeins 900-1.000 metra langar. Jafnframt verður nýr flugvöllur með 1.500 metra langri braut lagður við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands.Airbus-breiðþota Air Greenland á flugvellinum í Kangerlussuaq, sem áður hét Syðri-Straumfjörður. Bombardier-vél Flugfélags Íslands sést fyrir framan. Þetta er eini flugvöllur Grænlands í dag sem tekur við þotum í áætlunarflugi.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.Samningur sem Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands, gerði síðastliðið haust við Lars Løkke Rasmussen, þáverandi forsætisráðherra Danmerkur, um milljarða fjárstuðning Dana við flugvallgerðina, leiddi til þess að grænlenska ríkisstjórnin sprakk. Kim Kielsen tókst engu að síður að tryggja sér meirihlutastuðning fyrir málinu og mynda nýja ríkisstjórn. Sjá nánar hér: Framlag Dana til flugvallagerðar sprengdi ríkisstjórn Grænlands Í dönskum fjölmiðlum var haft eftir sérfræðingum um varnarmál að gjafmildi Dana snerist í raun um að halda Kínverjum frá Grænlandi. Um sama leyti lýsti bandaríska varnarmálaráðuneytið yfir vilja til að taka þátt í flugvallagerðinni en ekki hefur komið fram með hvaða hætti það verður gert.Kim Kielsen tók á móti Lars Løkke Rasmussen á flugvellinum í Nuuk síðastliðið haust þegar forsætisráðherra Danmerkur kom til að undirrita flugvallasamninginn.Mynd/TV-2, Danmörku.Danski verktakinn Munck Gruppen, sem nú fær flugvallagerðina, vann stórt verkefni fyrir bandaríska herinn við Thule-herstöðina á Norður-Grænlandi á árunum 2014 til 2017. Árið 2016 keypti Munck íslenska verktakafyrirtækið LNS Saga af norska félaginu LNS og breytti nafni þess í Munck Íslandi ehf. Þessu íslenska dótturfélagi var í dönskum fjölmiðlum fyrr á árinu lýst sem vandræðabarni Munck eftir stórfelldan taprekstur á árunum 2017 til 2018. Munck höfðaði síðan mál gegn LNS fyrir að hafa gefið ófullnægjandi og villandi upplýsingar um stöðu félagsins í söluferlinu. Stöð 2 fjallaði fyrir tveimur árum um mikla innviðauppbyggingu Grænlands í þætti frá Nuuk:
Danmörk Fréttir af flugi Grænland NATO Tengdar fréttir Kielsen tryggði flugvallagerð og fyrsta þjóðveg Grænlands Grænlendingar byggja upp nýtt flugvallakerfi og leggja fyrsta þjóðveg landsins, samkvæmt stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Kim Kielsen, en ráðherralistinn var kynntur í dag. 5. október 2018 21:00 Framlag Dana til flugvallagerðar sprengdi ríkisstjórn Grænlands Grænlenska ríkisstjórnin er sprungin vegna samnings um að danska ríkið leggi til tugi milljarða króna til flugvallagerðar á Grænlandi. Danir eru sagðir vilja koma í veg fyrir að Kínverjar komist til áhrifa á Grænlandi. 11. september 2018 21:30 Grænlendingar byggja upp nýtt flugvallakerfi Grænlensk stjórnvöld áforma stórfelldar flugvallaframkvæmdir sem gjörbreyta flugsamgöngum við landið og gætu styrkt tengsl Íslands og Grænlands enn frekar. 14. október 2016 20:15 Bandaríkin blanda sér í flugvallamál Grænlands Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur lýst yfir vilja til að taka þátt í flugvallauppbyggingu Grænlands í því skyni að styrkja stöðu Bandaríkjanna og NATO á norðurslóðum. 18. september 2018 20:45 Ístak keppir við Kínverja um gerð flugvalla á Grænlandi Ístak er eitt sex verktakafyrirtækja sem fá að bjóða í gerð þriggja flugvalla á Grænlandi. Meiri athygli hefur þó vakið að kínverskt fyrirtæki fær einnig að taka þátt í útboðinu. 16. apríl 2018 21:15 Grænlendingar hefja mestu uppbyggingu í sögu landsins Grænlenska þingið hefur samþykkt flugvallatillögu landsstjórnarinnar, en hún felur í sér mestu innviðauppbyggingu í sögu næstu nágrannaþjóðar Íslendinga. 18. nóvember 2018 21:45 Mest lesið Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Viðskipti innlent Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Atvinnulíf „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira
Kielsen tryggði flugvallagerð og fyrsta þjóðveg Grænlands Grænlendingar byggja upp nýtt flugvallakerfi og leggja fyrsta þjóðveg landsins, samkvæmt stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Kim Kielsen, en ráðherralistinn var kynntur í dag. 5. október 2018 21:00
Framlag Dana til flugvallagerðar sprengdi ríkisstjórn Grænlands Grænlenska ríkisstjórnin er sprungin vegna samnings um að danska ríkið leggi til tugi milljarða króna til flugvallagerðar á Grænlandi. Danir eru sagðir vilja koma í veg fyrir að Kínverjar komist til áhrifa á Grænlandi. 11. september 2018 21:30
Grænlendingar byggja upp nýtt flugvallakerfi Grænlensk stjórnvöld áforma stórfelldar flugvallaframkvæmdir sem gjörbreyta flugsamgöngum við landið og gætu styrkt tengsl Íslands og Grænlands enn frekar. 14. október 2016 20:15
Bandaríkin blanda sér í flugvallamál Grænlands Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur lýst yfir vilja til að taka þátt í flugvallauppbyggingu Grænlands í því skyni að styrkja stöðu Bandaríkjanna og NATO á norðurslóðum. 18. september 2018 20:45
Ístak keppir við Kínverja um gerð flugvalla á Grænlandi Ístak er eitt sex verktakafyrirtækja sem fá að bjóða í gerð þriggja flugvalla á Grænlandi. Meiri athygli hefur þó vakið að kínverskt fyrirtæki fær einnig að taka þátt í útboðinu. 16. apríl 2018 21:15
Grænlendingar hefja mestu uppbyggingu í sögu landsins Grænlenska þingið hefur samþykkt flugvallatillögu landsstjórnarinnar, en hún felur í sér mestu innviðauppbyggingu í sögu næstu nágrannaþjóðar Íslendinga. 18. nóvember 2018 21:45