Hvíta húsið tilkynnti skyndilega í gærkvöldi að Bandaríkjaher ætlaði að draga sig frá norðanverðu Sýrlandi vegna yfirvofandi innrásar Tyrkja sem beinist að Kúrdum. Yfirlýsingin kom í kjölfar símtals Trump og Receps Erdogan, forseta Tyrklands, í gær.
Sýrlenski lýðræðisher (SDF) Kúrda sem hefur verið helsti bandamaður Bandaríkjahers í baráttunni gegn Ríki íslams sakar Bandaríkjastjórn um að stinga sig í bakið með ákvörðuninni. Sameinuðu þjóðirnar segja óttast það versta, þar á meðal mannfall og flótta óbreyttra borgara.
Ákvörðunin er sögð hafa komið varnarmálayfirvöldum í Bandaríkjunum í opna skjöldu og gengið gegn ráðleggingum þeirra og utanríkisráðuneytisins. Bandarískt herlið byrjaði að yfirgefa landamærasvæði í norðanverðu Sýrlandi strax í morgun.
Fullyrti ranglega að flestir væru frá Evrópu
Trump réttlætti ákvörðun sína í röð tísta í morgun þar sem hann fór með fleipur um stöðuna í Sýrlandi. Sagði hann þátttöku Bandaríkjanna í átökunum í Sýrlandi hafa dregist úr hófi fram. Nú sé hins vegar búið að ráða niðurlögum Ríkis íslams.Síðastnefndu ummælin stangast á við mat varnarmálayfirvalda sem telja hættu enn stafa af leifum hryðjuverkasamtakanna í Sýrlandi þrátt fyrir að þau hafi tapað landsvæðum sem þau héldu áður.
Þá gaf Trump ranglega í skyn í tísti sínu að Bandaríkjaher hefði handsamað þúsundir vígamanna Ríkis íslams og sagði ranglega að þeir væru „aðallega frá Evrópu“. Það sanna er að hersveitir Kúrda eru taldar halda yfir tíu þúsund vígamönnum hryðjuverkasamtakanna. Af þeim séu um tvö þúsund erlendir.
Sakaði forsetinn Evrópuríki um að neita að taka við vígamönnunum og krefjast þess að þeim yrði haldið í bandarískum fangelsum. Viðurkenndi Trump að Kúrdar hefðu barist með Bandaríkjamönnum en að „þeir fengu greiddar gríðarlegar fjárhæðir og tækjabúnað fyrir það“.
„VIÐ MUNUM BERJAST ÞAR SEM ÞAÐ GAGNAST OKKUR, OG AÐEINS BERJAST TIL AÐ VINNA. Tyrkland, Evrópa, Sýrland, Íran, Írak, Rússland og Kúrdar verða núna að finna út úr stöðuna og hvað þeir vilja gera með handsamaða vígamenn Ríkis íslams í „hverfinu“ þeirra,“ tísti bandaríski forsetinn.
Benti hann á að Bandaríkin væru „7.000 mílum frá“ Sýrlandi og að þau myndu „mölva“ Ríki íslams ef þau nálguðust Bandaríkin. Tæpar 6.000 mílur skilja að Damaskus, höfuðborg Sýrlands, og Washington-borg.
The United States was supposed to be in Syria for 30 days, that was many years ago. We stayed and got deeper and deeper into battle with no aim in sight. When I arrived in Washington, ISIS was running rampant in the area. We quickly defeated 100% of the ISIS Caliphate,.....
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 7, 2019
„Stórslys í uppsiglingu“
Ákvörðun Trump virðist hafa komið jafnvel nánustu bandamönnum hans í eigin flokki á óvart. Þannig tísti Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins frá Suður-Karólínu og einn ötulasti málsvari Trump, að séu fréttir af ákvörðun forsetans réttar sé hún „stórslys í uppsiglingu“.Sagði þingmaðurinn að ákvörðunin tryggði að Ríki íslams næði vopnum sínum aftur og neyddi Kúrda til að leita á náðir Bashars al-Assad Sýrlandsforseta og Írans. Hún yrði jafnframt svartur blettur á heiðri Bandaríkjanna ef þau gæfu Kúrda upp á bátinn. Hótaði Graham að leggja fram ályktun í þinginu til að snúa ákvörðun Trump við.
I don't know all the details regarding President Trump's decision in northern Syria. In process of setting up phone call with Secretary Pompeo.
— Lindsey Graham (@LindseyGrahamSC) October 7, 2019
If press reports are accurate this is a disaster in the making.
Þar hótaði hann því ennfremur að leggja til refsiaðgerðir gegn tyrkneska hernum og hagkerfi Tyrklands stígi hann fæti inn í norðanvert Sýrland. Fullyrti hann að það væri einfaldlega ekki satt að búið væri að ráða niðurlögum Ríkis íslams í Sýrland.
Lindsey Graham calls in to Fox & Friends & calls Trump's decision to abandon the Kurds "impulsive."
— Aaron Rupar (@atrupar) October 7, 2019
"I hope I'm making myself clear how shortsighted & irresponsible this decision is in my view," he says. "This to me is just unnerving to its core." pic.twitter.com/URH0DVA1bo
„Við verðum alltaf að standa með bandamönnum okkar ef við ætlumst til þess að þeir standi með okkur. Kúrdar léku lykilhlutverk í árangursríkri baráttu okkar gegn ISIS í Sýrlandi. Það eru stór mistök að skilja þá eftir til að deyja,“ tísti Haley.
We must always have the backs of our allies, if we expect them to have our back. The Kurds were instrumental in our successful fight against ISIS in Syria. Leaving them to die is a big mistake. #TurkeyIsNotOurFriend
— Nikki Haley (@NikkiHaley) October 7, 2019