Pogba skaut Manchester United áfram í átta liða úrslit Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. mars 2021 22:15 Paul Pogba reyndist hetja Manchester United í kvöld. EPA-EFE/MATTEO BAZZI Manchester United vann 1-0 útisigur á AC Milan í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Leikur kvöldsins var svipaður og leikur liðanna fyrir viku. Honum lauk með 1-1 jafntefli eftir að Man United komst yfir. Það var ekki mikið um opin færi í leik dagsins en heimamenn fengu þó alveg 2-3 færi sem hefði dugað til að knýja fram framlengingu. Eina mark leiksins kom snemma í síðari hálfleik og það gerði varamaðurinn Paul Pogba. Hann hefur verið meiddur og var þetta hans fyrsti leikur í dágóðan tíma. Hann kom inn af bekknum og tók stöðu Marcus Rashford á vinstri vængnum. Aðeins fjórum mínútum síðar skoraði Pogba gull af marki úr þröngu færi eftir að boltinn hafði skoppað á milli manna í teig heimamanna. Svo virtist sem bæði varnarmenn Milan sem og Gianluigi Donnarumma, markvörður liðsins, héldu að Frakkinn ætlaði að lyfta boltanum inn á teig en í staðinn virtist hann reka tánna í boltann sem fór þaðan yfir höfuð Donnarumma og í netið. Back from injury Scores 4 minutes after coming on Paul Pogba = Super sub! #UEL pic.twitter.com/lU6KMbeHiA— UEFA Europa League (@EuropaLeague) March 18, 2021 Staðan orðin 1-0 og reyndust það lokatölur kvöldsins. Manchester United er því komið í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar ásamt Arsenal, Dinamo Zagreb, Slavia Prag, Roma, Granda, Ajax og Villareal. Dregið verður í hádeginu á morgun og verður drátturinn í beinni útsendingu Stöð 2 Sport. Evrópudeild UEFA Fótbolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti