Sektaður fyrir ólöglegt vopnabúr: Notaði skriðdrekann sem snjóplóg Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. ágúst 2021 10:01 Þýskir Panther-skriðdrekar á vígstöðvunum í Normandí árið 1944. Getty/Harlingue/Roger Viollet Þýskur eftirlaunaþegi hefur verið dæmdur í 14 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 37 milljónir króna í sekt fyrir að eiga umfangsmikið safn ólöglegra vopna. Meðal gripanna var skriðdreki, sem var fjarlægður af heimili mannsins af þýska hernum.
Maðurinn, sem er 84 ára, hefur ekki verið nafngreindur af lagalegum ástæðum en þegar rannsakendur gerðu leit á heimili hans í bænum Heikendorf árið 2015 fundu þeir meðal annars skriðdrekann og öfluga loftvarnabyssu. Í gær var maðurinn skikkaður til þess að gefa eða selja vopnin sem fundust innan tveggja ára en bandarískt safn er sagt hafa áhuga á skriðdrekanum, sem er af gerðinni Panther og var notaður í seinni heimstyrjöldinni. Þá hafa þýskir safnarar lýst áhuga á öðrum munum úr safni mannsins, meðal annars skotvopnum. Leit var gerð á heimili mannsins eftir að aðrir eftirlitsaðilar, sem höfðu heimsótt hann vegna stolinna listaverka frá tímum nasismans, gerðu viðvart um vopnabúrið. Það tók tuttugu hermenn um það bil níu klukkustundir að fjarlægja skriðdrekann af heimili mannsins, þar sem hann var ekki lengur á beltum. Nágrannar sögðust eitt sinn orðið vitni að því þegar maðurinn freistaði þess að nota skriðdrekann sem snjóplóg.
Þýskaland Hernaður Seinni heimsstyrjöldin Skotvopn Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Erlent Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Innlent „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Erlent Þrír fundust látnir í Noregi Erlent Trúverðugleiki forsætisráðherra sé í húfi Innlent Hallarekstur stöðvaður á næstu tveimur árum Innlent Fordæma árás á sjúkraliða Erlent Fleiri fréttir Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Fyrsta árás Ísraelshers í Líbanon eftir vopnahlé Óttast að mörg hundruð séu látin Áhöfn kafbátsins sem sökk í Rauðahafi yfirheyrð Albanese boðar til þingkosninga Sjá meira