Sviss í sextán liða úrslit eftir leik mótsins Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. desember 2022 21:15 Sviss vann Serbíu í frábærum leik. Xerdan Shaqiri skoraði fyrsta mark Svisslendinga í kvöld. Michael Steele/Getty Images Sviss er komið í 16-liða úrslit HM í fótbolta sem fram fer í Katar eftir frábæran 3-2 sigur á Serbíu. Leikurinn var gríðarlega dramatískur og sveiflukenndur. Það voru 20 mínútur liðnar þegar Xerdan Shaqiri braut ísinn og kom Sviss 1-0 yfir með skoti sem Vanja Milinković-Savić réð ekki við í marki Serbíu. Adam var þó ekki lengi í paradís en aðeins sex mínútum síðar jafnaði Aleksandar Mitrović metin með frábærum skalla eftir fyrirgjöf Dušan Tadić. Dušan Vlahović kom Serbíu svo yfir þegar tíu mínútur voru til loka fyrri hálfleiks. Staðan á þeim tímapunkti þannig að Serbía var á leiðinni í 16-liða úrslit. Sá draumur lifði þó ekki fram að hálfleik en þegar ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma í fyrri hálfleik jafnaði Breel Embolo metin, staðan 2-2 í hálfleik. Í upphafi síðari hálfleiks skoraði Remo Freuler það sem reyndist sigurmarkið fyrir Sviss en um eitt af mörkum mótsins var að ræða. Frábært spil Sviss í kringum vítateig Serbíu og mögnuð hælstoðsending Ruben Vargas kórónaði í raun markið. Þessi sending frá Ruben Vargas á Remo Freuler endar með þriðja marki Sviss á 48. mínútu, er þetta eitt af mörkum mótsins sem við vorum vitni af hérna? pic.twitter.com/aEa9TjcXuR— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) December 2, 2022 Það dró af leikmönnum þegar leið á síðari hálfleikinn og þó menn hafi fundið orkuna til að láta það virðast sem allt ætlaði fjandans til undir lok leiks þá tókst hvorugu liði að bæta við mörkum og Sviss vann 3-2 sigur. Sviss er því komið í 16-liða úrslit þar sem það mætir Portúga. HM 2022 í Katar Fótbolti
Mourinho heldur áfram að hella sér yfir dómara: „Þetta var skelfilegt. Hversu lengi var boltinn í leik?“