Nichols var stöðvaður í umferðinni í Memphis í Bandaríkjunum þann 7. janúar síðastliðinn. Hann átti að hafa brotið umferðarlög en lögregluþjónar drógu hann út úr bílnum. Minnst einn þeirra hélt á byssu og annar skaut Nichols með rafmagnsbyssu. Þá reyndi hann að hlaupa heim til móður sinnar sem bjó í ekki hundrað metra fjarlægð.
Nichols var stöðvaður og lögregluþjónarnir kýldu og spörkuðu ítrekað í hann á meðan hann lá í jörðinni og kallaði eftir aðstoð. Í kjölfar þess gerðu lögregluþjónarnir ekkert til að huga að Nichols einn þeirra tók myndir af honum. Hann var ekki fluttur á sjúkrahús fyrr en 27 mínútum eftir að sjúkraflutningamenn bar að garði.
Nichols lést þremur dögum síðar á sjúkrahúsi.
Allir lögregluþjónarnir voru reknir og lögreglustjórinn sagði þá bera beina ábyrgð á dauða Nichols. Hann hefur einnig sagt að ekkert bendi til þess að lögregluþjónarnir hafi haft tilefni til að stöðva Nichols. Þeir gætu átt yfir höfði sér allt að sextíu ára fangelsi.
Lögregluþjónarnir heita Tadarrius Bean, Demetrius Haley, Desmond Mills yngri, Emmitt Martin þriðji og Justin Smith. Þeir sögðust allir saklausir af ákærum um morð, alvarlega líkamsárás, mannrán, ofbeitingu valds og vanrækslu í starfi. Þeir ganga allir lausir gegn tryggingu og eiga næst að mæta fyrir dómara þann 1. maí.
Sjá einnig: Fimm til viðbótar reknir vegna dauða Nichols
James Jones yngri, dómari, bað aðstandendur Nichols og aðra um að sýna þolinmæði, því dómsmálið gæti tekið langan tíma.
„Allir sem að þessu máli koma vilja að því ljúki eins fljótt og auðið er. Það er þó mikilvægt að allir skilji að Tennessee ríki og allir sakborningarnir eiga fullan rétt á sanngjörnum réttarhöldum,“ sagði Jones.
Í dómsal í dag sagði lögmaður Beans að skjólstæðingur sinni hefði bara unnið vinnuna sína og hann hefði aldrei snert Nichols. Í frétt AP fréttaveitunnar segir að það sé ekki rétt, miðað við upptökur úr vestismyndavélum lögregluþjónanna.
'I feel numb'
— Sky News (@SkyNews) February 17, 2023
Tyre Nichols' mother RowVaughn Wells says she is waiting for somebody to wake her up from this "nightmare", adding she wants the former police officers to look her in the face.https://t.co/ocnxwWwmmC
Sky 501, Virgin 602, Freeview 233 and YouTube pic.twitter.com/smFOzS7ASO