Sport

Dagskráin í dag: Toppslagur í Olís-deild kvenna og Lengjubikarinn

Smári Jökull Jónsson skrifar
Tvö efstu lið Olís-deildar kvenna mætast í Eyjum í dag.
Tvö efstu lið Olís-deildar kvenna mætast í Eyjum í dag. Vísir/Hulda Margrét

Það er stórleikur á dagskrá í Olís-deild kvenna í handknattleik í dag þegar ÍBV tekur á móti Val. Þá fara fram leikir í Lengjubikar karla og kvenna sem og Serie A og NBA.

Stöð 2 Sport

Boltinn rúllar af stað strax klukkan 10:50 þegar Keflavík og Fylkir mætast í Lengjubikar karla. Keflavík hefur unnið tvo af sínum þremur leikjum en Fylkir er með þrjú stig eftir tvo leiki.

Klukkan 13:50 verður síðan bein útsending frá Vestmannaeyjum þar sem ÍBV og Valur mætast í Olís-deild kvenna. Valur er með tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar en ÍBV á leik til góða og því er þetta risastór leikur í baráttunni um deildarmeistaratitilinn.

Stöð 2 Sport 2

Ítalski boltinn verður sýndur beint klukkan 16:50 þegar Empoli tekur á móti Napoli sem líklega er heitasta lið Evrópu um þessar mundir.

Klukkan 19:35 verður síðan sýnt beint frá leik Lecce og Sassuolo í sömu deild en Þórir Jóhann Helgason leikur með Lecce.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 17:00 verður leikur Detroit Pistons og Toronto Raptors í NBA-deildinni sýndur beint.

Stöð 2 Sport 4

Útsending frá Honda mótinu á LPGA mótaröðinni í golfi hófst klukkan 3:30.

Stöð 2 Sport 5

Lengjubikar kvenna fer af stað í dag og leikur Keflavíkur og ÍBV verður í beinni útsendingu klukkan 12:50 en Jonathan Glenn, fyrrum þjálfari ÍBV, er núna þjálfari Keflavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×