Á fundinum fór Gang yfir utanríkisstefnu Kína á næstu árum og var augljóst að hann er á því að aukin samvinna Kínverja og Rússa í framtíðinni sé af hinu góða á meðan Bandaríkin og bandamenn þeirra séu uppspretta spennu og átaka.
Raunar sagði Qin Gang að átök á milli Kína og Bandaríkjanna væru óumflýjanleg, ef Bandaríkjamenn létu ekki af stefnu sinni og héldu áfram að reyna að þrengja að Kína í efnahagsmálum.
Hann var hinsvegar mun jákvæðari í garð Rússa og sagði að samband Beijing og Moskvu væri skínandi dæmi um hvernig samskipti ríkja ættu að fara fram.
Ræða ráðherrans nýja er sögð í góðu samræmi við ræðu sem forsetinn Xi Jinping hélt í gær á fundi kínverska Alþýðuþingsins sem nú stendur yfir í höfuðborginni Beijing. Þar sakaði leiðtoginn Bandaríkjamenn og bandamenn um að halda Kína niðri á alþjóðavettvangi.