Fimm frá Håland og Man City flaug áfram Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. mars 2023 21:55 Í sjöunda himni. EPA-EFE/Adam Vaughan Erling Braut Håland gerði sér lítið fyrir og skoraði fimm mörk í ótrúlegum 6-0 sigri Manchester City á RB Leipzig í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Staðan í einvíginu var 1-1 eftir fyrri leikinn. Fyrir leik var búist við nokkuð jöfnum leik enda allt jafnt eftir fyrri leik liðanna. Téður Håland sá hins vegar til þess að einvígið var einfaldlega búið áður en flautað var til hálfleiks í kvöld. Hann kom heimamönnum yfir úr vítaspyrnu, sem var vægast sagt umdeild, um miðbik fyrri hálfleiks. Aðeins tveimur mínútum síðar hafði hann tvöfaldað forystuna. Kevin De Bruyne með stoðsendinguna. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks kláraði norski framherjinn svo dæmið, staðan 3-0 þegar allur síðari hálfleikur var enn eftir. 22': Haaland (P) 24': Haaland 45+2': HaalandA hat-trick for Erling Haaland in the first half of the second leg. #MCIRBL | #MCFC | #RBLeipzig | #UCL pic.twitter.com/wX0aKP6jFR— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) March 14, 2023 Sá síðari byrjaði ekki vel fyrir gestina en Man City skoraði þrjú mörk á átta mínútna kafla í upphafi síðari hálfleiks. Håland með tvö og İlkay Gündoğan eitt. Staðan 6-0 þegar enn var rúmur hálftími til leiskloka. Gestirnir hafa eflaust þakkað æðri máttarvöldum þegar norski framherjinn var tekinn af velli á 63. mínútu. Bæði lið sættust í kjölfarið á að það væri bara fínt ef ekki yrðu fleiri mörk skoruð, eða svo héldu gestirnir. Kevin De Bruyne var ekki á sama máli og skoraði sjöunda mark heimamanna í uppbótartíma. pic.twitter.com/l7RcKWUQY3— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) March 14, 2023 Lokatölur í kvöld 7-0 og Manchester City fer því áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir að leggja RB Leipzig samtals 8-1 í tveimur leikjum. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla