Fótbolti

Gunn­laugur genginn í raðir Fylkis

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson mun leika með Fylki næstu tvö árin.
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson mun leika með Fylki næstu tvö árin. Fylkir

Knattspyrnumaðurinn Gunnlaugur Fannar Guðmundsson er genginn í raðir Fylkis frá Keflavík og mun leika með Árbæjarliðinu á komandi leiktíð í Bestu-deild karla í knattspyrnu.

Gunnlaugur gerir tveggja ára samning við Fylki, en félagið greinir frá félagsskiptunum á samfélagsmiðlum sínum.

Gunnlaugur lék 22 leiki með Keflvíkingum í Bestu-deildinni á síðustu leiktíð er liðið féll niður í Lengjudeildina. Fylkismenn, sem voru nýliðar í deild þeirra á bestu á síðustu leiktíð, héldu hins vegar sæti sínu í efstu deild.

Alls á Gunnlaugur að baki 48 leiki í efstu deild á Íslandi með Keflavík og Víkingi og hefur hann skorað í þeim eitt mark. Þá hefur hann einnig leikið með Kórdrengju og Haukum í næst efstu deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×