Inter getur ekki tapað og er áfram á toppnum Smári Jökull Jónsson skrifar 17. desember 2023 21:45 Lautaro Martinez fagnar marki sínu í kvöld. Vísir/Getty Inter er áfram á toppi Serie A á Ítalíu eftir góðan útisigur í Rómarborg í kvöld. Inter hefur ekki tapað leik í ítölsku deildinni síðan í september. Inter mætti til Rómaborgar í leik gegn Lazio sem topplið ítölsku úrvalsdeildarinnar. Liðið var einu stigi á undan Juventus sem mistókst að taka toppsætið með því að gera aðeins jafntefli gegn Genoa á föstudag. Lautaro Martinez kom Inter í forystu á 40. mínútu og staðan í hálfleik var 1-0. Hinn franski Marcus Thuram skoraði annað mark Inter á 66. mínútu eftir sendingu Nicola Barella og sigurinn í seilingarfjarlægð. Manuel Lazzari fékk rautt spjald í liði Lazio þremur mínútum fyrir leikslok en hvorugu liðinu tókst að bæta við marki. Lokatölur 2-0 og Inter nú með fjögurra stiga forystu á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar. Liðið hefur ekki tapað deildar- eða Evrópuleik síðan í september þegar liðið beið lægri hlut gegn Sassuolo. Lazio er í tómu brasi og er í 12. sæt. Heldur betur farið að hitna undir Maurizio Sarri knattspyrnustjóra. Ekki gekk betur hjá hinu Rómarliðinu. Lærisveinar Jose Mourinho í Roma voru í heimsókn í Bologna og þurftu að sætta sig við 2-0 tap. Nikola Moro skoraði fyrra mark Bologna og seinna markið var sjálfsmark Rasmus Kristiansen. Roma situr í 7. sæti Serie A en Bologna í 4. sæti. Úrslit dagsins á Ítalíu: AC Milan - Monza 3-0Fiorentina - Hellas Verona 1-0Udinese - Sassuolo 2-2Bologna - Roma 2-0Lazio - Inter 0-2 Ítalski boltinn
Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“ Körfubolti
Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“ Körfubolti