Körfubolti

Sam­band við eldri konu sagt hafa skaðað mögu­leika hans í ný­liða­valinu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Kyle Filipowski komst í NBA-deildina eftir allt saman.
Kyle Filipowski komst í NBA-deildina eftir allt saman. Patrick Smith/Getty Images

Kyle Filipowski hefði átt að vera meðal fyrstu manna sem valdir voru í nýliðavali NBA-deildarinnar á dögunum. Samband hans við konu sem er 7-8 árum eldri og sambandsleysi við eigin fjölskyldu er sagt vera ástæða þess að hann fór ekki fyrr en í 2. umferð valsins.

Nýliðaval NBA-deildarinnar í körfubolta er ávallt mikið húllumhæ, fyrir fram er nokkurn veginn vitað hvaða leikmenn verða valdir fyrstir. Í dag er valinu skipt upp í tvo hluta, fyrstu 30 leikmennirnir eru valdir við hátíðlega athöfn á meðan hinir þurfa að bíða í sólarhring til að komast að því hvort hafi verið valdir eður ei.

Nýliðavalið í ár var heldur óspennandi og hefði Kyle Filipowski átt að fara í 1. umferð. Um er að ræða leikmann sem er 2.11 metrar á hæð og spilaði í stöðu fjarka fyrir Duke-háskólann undanfarin tvö ár. Þar var hann með 16 stig að meðaltali í leik ásamt því að taka 8 fráköst.

Allt kom fyrir ekki og Kyle féll niður listann í nýliðavalinu. Á endanum var það Utah Jazz sem nældi í hann með 32. valréttinum í ár. Það er hins vegar heldur skrítið að leikmaður hrapi jafn harkalegan niður í goggunarröðinni en flestar spár sögðu Kyle vera meðal efstu manna í valinu.

Ástæðan fyrir fallinu er sögð vera ástarsambands Kyle við stúlku sem er þónokkrum árum eldri en hann sjálfur. Það ásamt þeirri staðreynd að hann er í litlu sem engu sambandi við sína nánustu fjölskyldumeðlimi.

„Lið í NBA eru að tala sín á milli um þá staðreynd að kærasta hans sé svona mikið eldri en hann og hver ástæðan sé bakvið lítil sem engin tengsl hans við fjölskyldu sína,“ sagði Jonathan Givony, blaðamaður ESPN, í hlaðvarpinu NBA Today. Hann átti hins vegar mjög erfitt með að skilja hvernig Kyle var ekki valinn fyrr þar sem hann „sniðinn að NBA-deildinni.“

Það er ekki vitað nákvæmlega hversu gömul Caitlin Hutchinson, unnusta Kyle er, en ef marka má myndir á samfélagsmiðlum af því hvenær hún útskrifaðist úr mennta- og háskóla má telja að hún sé 27-28 ára gömul, það er sjö eða átta árum eldri en Kyle. Þau trúlofuðust fyrr á þessu ári og mun parið gifta sig í ágúst.

Þó það sé ef til vill ekki algengt að tvítugur drengur sé í sambandi með kvenmanni sem er nokkrum árum eldri þá er það ekki óeðlilegt. Jafnframt ætti það ekki að vera ástæða þess að NBA-lið hafi ekki viljað fá jafn efnilegan leikmann og Kyle í sínar raðir. Þá hafa leikmenn verið valdir í nýliðavalinu sem eru í litlum eða engu sambandi við sína nánustu fjölskyldu.

Það er hins vegar talið áhyggjuefni hvenær hjónin verðandi hófu samband sitt. Á Instagram-síðu Kyle má finna mynd af parinu þann 21. maí árið 2022.

Þegar sú mynd er tekin er Kyle aðeins 17 ára gamall en undir myndina var skrifað: „Eitt ár með uppáhalds manneskjunni minni.“ Þeim ummælum hefur nú verið eytt en það þýðir að Kyle var aðeins 16 ára gamall þegar samband þeirra hófst. Þá eru sögusagnir þess efnis að Caitlin hafi á sínum verið barnapía Kyle.

Ofan á allt þetta hefur maður að nafni Daniel Filipowski – sem segist vera bróðir Kyle – sagt að fyrir tveimur árum hafi Caitlin neytt Kyle að slíta öll tengsl við fjölskyldu sína. Hann hafi sent þeim tölvupóst sem líkja má við keðjubréf. 

Daniel hefur verið duglegur að tjá sig á X-síðu sinni, áður Twitter. Þar gagnrýnir hann meðal annars Duka-háskólann sem og hann segir bróðir sinn vera fórnarlamb og hið fullkomna peð í áætlun Caitlin sem fór fyrst að sýna honum áhuga árið 2019 þegar hæfileikar hans í körfubolta voru auðsjáanlegir. 

Strax þá var Kyle kominn á lista yfir leikmenn sem ættu framtíðina fyrir sér og gætu að öllum líkindum spilað í NBA-deildinni.

Kyle sjálfur hefur ekki enn tjáð sig um málið en það má reikna með því að hann verði spurður út í það fyrr en seinna af öllum þeim blaðamönnum sem fjalla um NBA-deildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×