Enski boltinn

Chelsea kaupir Kana

Valur Páll Eiríksson skrifar
Caleb Wiley skrifar undir langtímasamning við Chelsea.
Caleb Wiley skrifar undir langtímasamning við Chelsea. Mynd/Chelsea

Virkni Chelsea er áfram mikil á félagsskiptamarkaðnum en félagið bætti við sig bakverði í dag.

Sá heitir Caleb Wiley og er vinstri bakvörður frá Bandaríkjunum. Hann er 19 ára gamall og kaupir Chelsea hann frá liði Atlanta United í MLS-deildinni vestanhafs.

Wiley skrifar undir sex ára samning með möguleika á árs framlengingu.

Wiley hefur verið fastamaður hjá Atlanta liðinu þrátt fyrir ungan aldur og færir sig nú til Lundúna. Hann mætir þó ekki til æfinga með þeim bláklæddi fyrr en eftir Ólympíuleika, hvar hann er staddur með bandaríska landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×