Erlent

Her­menn sakaðir um að mis­þyrma palestínskum fanga kyn­ferðis­lega

Kjartan Kjartansson skrifar
Öfgahægrimenn ruddu sér leið inn í Sde Teiman-herstöðina til þess að mótmæla handtökum á hermönnum sem eru sakaðir um að misþyrma vígamanni Hamas.
Öfgahægrimenn ruddu sér leið inn í Sde Teiman-herstöðina til þess að mótmæla handtökum á hermönnum sem eru sakaðir um að misþyrma vígamanni Hamas. AP/Tsafrir Abyaov

Til uppþota kom á herstöð þar sem Ísraelsher heldur palestínskum föngum eftir að níu ísraelskir hermenn voru handteknir og sakaðir um að misþyrma föngum kynferðislega. Stuðningsmenn þeirra brutust inn í herstöðina og kröfðust þess að þeim yrði sleppt.

Hermennirnir voru handteknir og færðir til yfirheyrslna í gær vegna ásakana um „verulega misnotkun“ á föngum í Sde Teiman-herstöðinni þar sem Ísraelar hafa vistað flesta þeirra Palestínumanna sem þeir hafa handtekið frá því að stríðsrekstur þeirra á Gasa hófst í október. Þeir áttu að koma fyrir herrétt í dag, að sögn AP-fréttastofunnar.

Handtökurnar ollu mikilli reiði hjá harðlínumönnum í ríkisstjórn Benjamíns Netanjahús forsætisráðherra og stuðningsmönnum þeirra. Hundruð mótmælenda, þar á meðal nokkrur stjórnarþingmenn, brutu sér leið inn í Sde Teiman og síðar Beit Lid-herstöðina þar sem hermönnunum er haldið. Þar tókust þeir á við hermenn áður en þeim var vísað út.

Netanjahú fordæmdi múginn og kallaði eftir stillingu í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér. Herzi Halevi, herráðsforingi ísraelska hersins, sagði mótmælin grafalvarleg og ógna öryggis ríkisins á stríðstímum.

Á öndverðum meiði var Itamar Ben-Gvir, öryggismálaráðherra og harðínumaður. Hann sagði skammarlegt að hermennirnir hefðu verið handteknir. Ben-Gvir og skoðanabræður hans vilja að beita Palestínumenn meira harðræði.

Fórnarlambið sagt háttsettur Hamas-liði

Verjandi hermannanna segir þá saklausa af ásökunum um meint kynferðisofbeldi. Atvikið hafi átt sér stað fyrir mánuði eftir að fangi, meintur háttsettur vígamaður Hamas-samtakanna, á að hafa ráðist á hermennina við leit. Hermennirnir hafi beitt valdi en ekki gert neitt kynferðislegt.

Breska ríkisútvarpið BBC hefur eftir staðarfjölmiðlum að fanginn hafi verið lagður inn á sjúkrahús vegna alvarlegs kynferðisofbeldis. Hann hafi ekki getað gengið vegna áverka á endaþarmi.

Alþjóðlegir fjölmiðlar, mannréttindasamtök og Palestínuflóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) hafa gagnrýnt aðstæður í Sde Teiman. Í skýrslu síðastnefndu stofnunarinnar frá því í apríl voru rakin um dæmi um að fangar hefðu verið þvingaðir til þess að berhátta sig, þeir hafi verið myndaðir naktir og kynfæri þeirra barin í haldi Ísraela. Ekki var tekið sérstaklega fram hvar slík brot hefðu átt sér stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×