Erlent

Yfir­maður hernaðararms Hamas sagður hafa fallið í á­rás Ísraela

Eiður Þór Árnason skrifar
Palestínumenn leituðu að líkum eftir árásina í Khan Younis á Gasa-ströndinni þann 13. júlí síðastliðinn.
Palestínumenn leituðu að líkum eftir árásina í Khan Younis á Gasa-ströndinni þann 13. júlí síðastliðinn. Ap/Jehad Alshrafi

Mohammed Deif, yfirmaður hernaðararms Hamas féll í árás Ísraela fyrir tæplega þremur vikum. Þetta staðhæfir Ísraelsher í dag og segir Deif hafa farist í loftárás á húsnæði í útjaðri borgarinnar Khan Younis í suðurhluta Gaza þann 13. júlí.

Hamas sagði Deif hafa lifað af umrædda árás en samtökin hafa enn ekki tjáð sig um yfirlýsingu Ísraelshers í dag. Meira en níutíu aðrir, þar á meðal óbreyttir borgarar á flótta í nærliggjandi tjöldum, létu lífið í árásinni, að sögn heilbrigðisyfirvalda á Gasa. Í yfirlýsingu segir ísraelski herinn að „eftir mat leyniþjónustunnar sé hægt að staðfesta að Mohammed Deif hafi verið drepinn í árásinni.“

AP-fréttaveitan greinir frá þessu en fregnirnar koma daginn eftir að Ismail Haniyeh, pólitískur leiðtogi Hamas féll í loftárás í Tehran, höfuðborg Íran. Ísrael hefur verið kennt um þá árás en þarlend stjórnvöld ekki tekið ábyrgð á henni. Drápin á tveimur af æðstu leiðtogum Hamas er sagður vera sigur fyrir Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels sem hefur sagt að hann muni ekki binda enda á árásir á Gasa fyrr en Ísrael hafi eyðilagt hernaðargetu Hamas.

Lítið hefur orðið ágengt í viðræðum Ísraels og Hamas um vopnahlé á Gasa en morðin eru talin geta orðið til þess að Hamas herði afstöðu sína í viðræðunum eða dragi sig út úr þeim. Stjórnvöld í Íran hafa heitið því að hefna fyrir dráp Haniyeh á íranskri grundu. Áhyggjur eru uppi um að árásirnar geti leitt til aukinnar stigmögnunar og frekari stríðsátaka í heimshlutanum. 

Meðal stofnanda hernaðararms Hamas

Ísrael telur að Deif og Yahya Sinwar, leiðtogi Hamas á Gasa séu höfuðpaurarnir á bak við árásina þann 7. október sem varð 1.200 Ísraelsmönnum af bana og hrundi af stað yfirstandandi stríði Ísraels og Hamas. Talið er að Sinwar haldi sig í felum á Gasa en ísraelsk stjórnvöld hafa gefið út að þau vilji hann feigan. 

Um 39.480 Palestínumenn hafa farist og meira en 91.100 særst í árásum Ísraelshers á Gasa síðastliðna tíu mánuði, að sögn heilbrigðisyfirvalda á Gasa. Á sama tíma eru yfir 80 prósent íbúa á svæðinu talin vera á flótta eða um 2,3 milljónir manna. Búa langflestir við bágbornar aðstæður í tjaldbúðum á suðvesturhorni Gasa með takmarkað aðgengi að fæðu og vatni. 

Deif var einn af stofnendum Qassam-herdeildanna, hernaðararms Hamas og stýrði þeim í áratugi. Undir stjórn hans gerðu þær tugi sjálfsmorðssprengjuárása á Ísraela í rútum og á kaffihúsum og skutu eldflaugum á Ísrael. Deif fór huldu höfði, kom aldrei fram opinberlega, náðist sjaldan á mynd en heyrðist einstaka sinnum í hjóðyfirlýsingum. Hann lifði af fjölda banatilræða af hendi Ísraels.   

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Drápið á Heniyeh vekur hörð viðbrögð og ótta um stigmögnun

Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, segir það skyldu stjórnvalda í Tehran að hefna drápsins á Ismail Haniyeh, pólitískum leiðtoga Hamas. Ísrael hafi lagt grundvöll að „harkalegum refsiaðgerðum“ með því að drepa Haniyeh.

Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran

Áhyggjur af stigmögnun átaka í tengslum við stríð Ísrael gegn Hamas fara nú vaxandi eftir að fregnir bárust af því að Ismail Haniyeh, pólitískur leiðtogi samtakanna, hefði verið ráðinn af dögum í Íran.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×