Fótbolti

Telur að Yoro slái í gegn hjá United: „Pirrandi að mæta honum“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson hefur trú á því að Leny Yoro geri vel í Manchester.
Hákon Arnar Haraldsson hefur trú á því að Leny Yoro geri vel í Manchester. Samsett/Vísir/Getty

Landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson hefur mikla trú á franska varnarmanninum Leny Yoro sem var liðsfélagi Hákons hjá Lille þar til hann skipti til Manchester United í sumar. Hákon kveðst strax hafa séð hversu mikið hæfileikabúnt franski miðvörðurinn er.

Yoro er aðeins 18 ára gamall, verður 19 ára í nóvember, en var þrátt fyrir það lykilmaður hjá Lille á síðustu leiktíð. Frammistaða hans kallaði á áhuga margra stærstu félaga heims en Manchester United hreppti hnossið þegar liðið keypti Yoro á um 60 milljónir evra í sumar.

Hákon Arnar lék með Yoro í fyrra og segist strax hafa séð hversu miklum hæfileikum miðvörðurinn ungi býr yfir.

„Þetta er ótrúlega nútímalegur hafsent. Hann er með alla eiginleikana sem hafsent í dag þarf að hafa. Hann er hávaxinn, góður í loftinu, en samt hrikalega góður á boltann og hraður,“ segir Hákon í samtali við íþróttadeild Vísis.

„Ég sá það bara strax þegar ég byrjaði æfa með honum hvað hann var góður. Á miðað við að hann sé bara 2005 model, sem er bara fáránlegt. Ég held hann muni standa sig vel þarna. Maður sá það strax að hann var geggjaður,“ bætir Hákon við.

Leiðinlegt að mæta honum á æfingum

Aðspurður hvernig hafi verið að eiga við Yoro á æfingum segir Hákon það sannarlega hafa reynt á.

„Það bara eiginlega bara leiðinlegt. Hann er yngri en maður sjálfur en samt svona góður, það er eiginlega bara pirrandi að mæta honum sko. En jú, líka bara gaman,“ segir Hákon léttur.

Yoro meiddist illa í sumar, fljótlega eftir komuna til Manchester-liðsins, og verður frá í þónokkrar vikur í viðbót. Þrátt fyrir það hefur Hákon trú á því að hann geti stimplað sig inn hjá aðalliði félagsins eftir að hann stígur upp úr meiðslunum.

„Ég held það. Þetta er auðvitað risa skref að fara í einn stærsta klúbb í heimi. Ég hef trú á honum, ég held hann hafi þessa eiginleika sem þarf til hjá þessum risaklúbbum,“ segir Hákon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×