Viðskipti erlent

Volvo heykist á al­gjörri raf­væðingu árið 2030

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Svo virðist sem að það sé að hægjast á rafbílavæðingunni, ef marka má yfirlýsingar frá Volvo, GM og Ford.
Svo virðist sem að það sé að hægjast á rafbílavæðingunni, ef marka má yfirlýsingar frá Volvo, GM og Ford. EPA-EFE/RUNGROJ YONGRIT

Bílaframleiðandinn Volvo hefur nú dregið í land með þær áætlanir sínar að bjóða einungis upp á alrafdrifna bíla árið 2030.

Þessar metnaðarfullu áætlanir voru kynntar fyrir þremur árum en nú segir fyrirtækið að markmiðið náist væntanlega ekki. Búist er við því að árið 2030 verði um níutíu prósent allra Volvo bíla sem renna nýjir af færibandinu rafdrifnir eða tengiltvinnbílar, en tíu prósent verði með svokölluðum hybrid vélum, sem nýta bæði rafmagn og jarðefnaeldsneyti.

Ástæðan er fyrst og fremst sú staðreynd að dregið hefur úr eftirspurn eftir aldrafdrifnum bílum á stærstu mörkuðum Volvo og þá er einnig mikil óvissa uppi um tolla sem setja á á rafbíla frá Kína. Að auki hefur innviðauppbygging þegar kemur að hleðslustöðvum ekki gengið eins hratt og vonir stóðu til auk þess sem mörg ríki hafa dregið úr stuðningi til þeirra sem vilja kaupa rafbíl.

Volvo er ekki fyrsti framleiðandinn sem dregur í land með þessa alrafdrifnu framtíðarsýn, en bílarisar á borð við Ford og GM hafa gert slíkt hið sama undanfarið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×