Íslenski boltinn

Víkingar gætu komið ís­lensku liði í Evrópudeildina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Víkingar fagna hér öðru marka sinna á Kópavogsvellinum í gær.
Víkingar fagna hér öðru marka sinna á Kópavogsvellinum í gær. Vísir/Anton Brink

Víkingar gleðja ekki bara gjaldkerann sinn með frábæru gengi sínu í Evrópu heldur gætu þeir einnig hjálpað íslenskum fótbolta inn í þá Evrópukeppni sem hefur verið lokuð íslenskum liðunum síðustu ár.

Víkingar hafa unnið tvo síðustu leiki sína í Sambandsdeildinni sem voru báðir spilaðir á Kópavogsvellinum. Liðið vann fyrst belgíska félagið Cercle Brugge 3-1 og svo bosníska félagið Borac Banja Luka 2-0.

Gott gengi Víkings í Sambandsdeildinni er að hjálpa íslenskum félagsliðum til að bæta stöðu sína á styrkleikalista UEFA, til viðbótar við að færa Víkingum mörghundruð milljónir.

Víkingsliðið situr sem stendur í fjórtánda sæti í deildarkeppninni með sex stig og jafna markatölu, 5-5.

Samkvæmt nýjustu tölum þá er Ísland nú komið upp í 33. sæti á styrkleikalistanum en Ísland var í 35. sæti eftir síðasta tímabil.

Sigrar Víkinga í viðbót við stig annarra íslenska félaga í Evrópukeppnunum hefur komið Íslandi upp fyrir bæði Kósóvó og Armeníu. Því má bæta við að Breiðablik á líka mikinn þátt í þessu með stigasöfnun sinni í Evrópu síðustu misseri.

33 efstu þjóðirnar á listanum fá eitt sæti í Evrópudeildinni. Víkingar fengu sem dæmi +0.500 stig fyrir sigurinn í gær og Ísland er þar með komið með 12.333 stig. Kósóvó er með 12.041 stig en Armenía er með 12.000 stig. Kósóvó fær ekki fleiri stig því ekkert lið þeirra er enn með.

Armenar eiga einn eitt lið eftir í Evrópukeppni eins og við Íslendingar en það er Noah sem tapaði 8-0 á móti Chelsea í Sambandsdeildinni í gær.

Svo skemmtilega vill til að Víkingur og Noah mætast út í Armeníu í næstu umferð og þar gætu Víkingar líklegast tryggt Ísland Evrópudeildarsæti með sigri.

Ísland fékk þrjú sæti í Sambandsdeildinni í ár en ekkert sæti í Evrópudeildinni.

Verði þetta raunin þá fara Íslandsmeistarar næsta árs í forkeppni Meistaradeildarinnar sumarið 2026, bikarmeistarar næsta árs í forkeppni Evrópudeildarinnar 2026, og svo tvö efstu liðin til viðbótar úr Bestu deildinni á næsta ári í forkeppni Sambandsdeildarinnar 2026.


Tengdar fréttir

„Frammistaða upp á 8,5 í þessum leik“

Arnar Bergmann Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var himinlifandi með frammistöðu leikmanna sinna þegar liðið lagði Borac Banja Luka að velli með tveimur mörkum gegn engu í leik liðanna í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta karla í dag. 

Víkingar komnir í 750 milljónir og gætu spilað fram í febrúar

Víkingar halda áfram að tryggja sér háar fjárhæðir með frábærum árangri í Sambandsdeild Evrópu. Sextíu milljónir króna bætast við með sigrinum góða á Borac í dag, sem jafnframt fer langt með að duga Víkingi til að komast áfram í umspil keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×