Erlent

Fær­eyingar fagna tvennum göngum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Samgönguráðherra Færeyja, Dennis Holm, sagði í vígsluræðunni að góðar samgöngur innan Færeyja væru jafnréttismál.
Samgönguráðherra Færeyja, Dennis Holm, sagði í vígsluræðunni að góðar samgöngur innan Færeyja væru jafnréttismál. Landsverk

Mannfjöldi fagnaði opnun tveggja nýrra jarðganga á Borðey í Færeyjum fyrir helgi, Árnafjarðarganga og Hvannasundsganga. Saman nefnast þau Göngin norður um Fjall og eru samtals 4,2 kílómetra löng.

Göngunum er ætlað treysta samgöngur milli Klakksvíkur, næst stærsta bæjar Færeyja, og annarra byggða á Borðey; Árnafjarðar, Norðdepils og Hvannasunds, sem og Viðeyjar og Viðareiðis. Þau leysa af tvenn eldri göng frá árunum 1965 og 1967, sem eru einbreið og barn síns tíma. Þau eru það þröng að stórir flutningabílar geta ekki notað þau, sem takmarkað hefur meðal annars fiskflutninga.

Mannfjöldi mætti til að fagna opnun jarðganganna.Landsverk

Samgöngu- og sjávarútvegsráðherra Færeyja, Dennis Holm, sem klippti á borðann, lagði áherslu á það í vígsluávarpi sínu að góðar samgöngur innan Færeyja væru jafnréttismál.

„Landsstjórnin vinnur að því markmiði að Færeyjar verði bundnar saman þannig að við getum búið, starfað og ferðast um eyjarnar á jafnréttisgrundvelli,“ sagði Dennis Holm.

Almenningi var fyrst boðið að ganga, hlaupa og hjóla í gegnum göngin áður en opnað var fyrir bílaumferð.Landsverk

„Það leikur enginn vafi á því að gömlu göngin norðan við Fjall hafa verið mikil hindrun í okkar nútímasamfélagi, þar sem góð tengsl milli þorpa, bæja, eyja og einnig landa eru þýðingarmikill þáttur í velferðarríki.

Hornaflokkur lék við vígsluathöfnina.Landsverk

Það er mikilvægt í daglegu lífi okkar að geta á auðveldan, fljótlegan og öruggan hátt ferðast til vinnu, í skóla, á íþrótta- og menningarviðburði, sótt opinbera þjónustu og ekki síst til að heimsækja fjölskyldu og vini,“ sagði samgönguráðherrann ennfremur.

Færeyingar hófu gerð ganganna í febrúar 2021 en Stöð 2 sýndi þá frá byrjun framkvæmda í þessari frétt:

Enginn vegtollur fylgir þessum göngum né öðrum göngum í gegnum færeysk fjöll. Gjaldtaka af jarðgöngum þar er eingöngu af neðansjávargöngum. Fern slík eru komin á milli eyja í Færeyjum; Vogagöng, Norðureyjagöng, Austureyjargöng og Sandeyjargöng.

Horft út um gangamunna.Landsverk

Og Færeyingar virðast ekkert ætla að slaka á í jarðgangagerðinni. Ráðherrann boðaði að næstu göng yrðu til Tjörnuvíkur og stefnt væri á fyrstu sprengingu á næsta ári. Jafnframt væru Suðureyjargöng komin á dagskrá.

Stöð 2 heimsótti Færeyjar síðastliðið sumar og fjallaði um jarðgangagerð Færeyinga í þessari frétt:

Stærsta áskorunin er þó framundan, 23 kílómetra löng Suðureyjargöng, sem sagt var frá hér:


Tengdar fréttir

Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng

Fulltrúar allra flokka á Lögþingi Færeyja undirrituðu í dag sameiginlegan sáttmála um Suðureyjargöng með tilheyrandi vegtengingum. Samtímis var kynnt lagafrumvarp, sem allir flokkarnir sex standa á bak við, um stofnun sérstaks félags, P/F Suðuroyartunnilin, um gerð og rekstur ganganna. Þar er gert ráð fyrir ríflegum stofnframlögum úr landssjóði Færeyja upp á samtals fjóra milljarða íslenskra króna næstu tvö ár.

Búa sig undir ákvörðun um stærsta mannvirki Færeyja

Færeyingar búa sig núna undir stærstu ákvörðun færeyskrar mannvirkjagerðar, hvort grafa eigi 26 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar. Þeir stefna að ákvörðun eftir hálft ár og vonast til að framkvæmdir hefjist innan þriggja ára.

Færeyingar byrjuðu á enn einum jarðgöngum í dag

Færeyingar hófu í dag að grafa enn ein jarðgöngin, að þessu sinni tveggja kílómetra innanbæjargöng í jaðri Þórshafnar. Þetta þýðir að samtímis er núna verið að grafa sex jarðgöng í Færeyjum, til viðbótar við tvenn sem frændur okkar hafa nýlokið við.

Færeyingar grafa fern jarðgöng á sama tíma

Færeyingar hófu í vikunni framkvæmdir við tvenn ný jarðgöng, til viðbótar við þrenn önnur sem verið er að grafa eða nýlokið er við. Áður var búið að grafa nítján jarðgöng í Færeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×