Innlent

Jón Stein­dór að­stoðar Daða Má

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Jón Steindór Valdimarsson hóf störf sem aðstoðarmaður fjármálaráðherra í dag. Hann er formaður Evrópuhreyfingarinnar.
Jón Steindór Valdimarsson hóf störf sem aðstoðarmaður fjármálaráðherra í dag. Hann er formaður Evrópuhreyfingarinnar. Vísir/Vilhelm

Jón Steindór Valdimarsson, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Daða Más Kristóferssonar, nýs fjármála- og efnahagsráðherra. Jón Steindór tók til starfa í dag. 

Þetta staðfestir Jón Steindór í samtali við Vísi en hann kveðst spenntur fyrir að takast á við verkefnin framundan í nýju starfi sem aðstoðarmaður ráðherra. „Ég held að ég sé búinn að vera hérna samtals í fjóra klukkutíma. Ég er mjög spenntur, annars hefði ég ekki tekið þetta að mér, að fallast á tillögu Daða um að aðstoða hann hér,“ segir Jón Steindór. 

Hann og Daði Már þekkjast vel og hafa unnið mikið og náið saman á vettvangi stjórnmálanna í gegnum flokksstarf Viðreisnar. „Við Daði erum búnir að vinna talsvert saman. Okkar samstarf nær aftur til 2015 en við komum saman að því að stofna Viðreisn á sínum tíma og við höfum verið talsvert að vinna saman í málefnastarfi og stefnumótun fyrir flokksins,“ segir Jón Steindór. „Við þekkjumst mjög vel.“

Evrópusinni með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu

Jón Steindór er með stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri, embættispróf í lögfræði frá HÍ og MPM frá tækni- og verkfræðideild HR 2013.

Í æviágripum á vef Alþingis kemur meðal annars fram að Jón Steindór hefur áður starfað í fjármálaráðuneytinu, þá sem lögfræðingur árið 1985 en síðan hefur hann gegnt ýmsum fjölbreyttum störfum á vettvangi fjármála- og efnahagslífs.

Hann var alþingismaður Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi 2016 til 2021. „Ég hef alls konar reynslu bæði úr atvinnulífi og síðan auðvitað á þinginu og hef verið í stjórnum fjármálafyrirtækja og þess háttar þannig ég hef ekki trú á öðru en að ég geti hjálpað eitthvað til,“ segir Jón Steindór.

Hann er jafnframt formaður Evrópuhreyfingarinnar sem stofnuð var árið 2022 og tók yfir Já Ísland og Evrópusamtökin. Hann var formaður Já Ísland! frá 2009 til 2016 en samtökin tala fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. 

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×